Eftirspurn eftir insúlínsprautum og nálum heldur áfram áfram að aukast. Hægt er að nota sprauturnar til að sprauta peptíðum í líkamann, en borið hefur á ólöglegri notkun þeirra hér á landi.
Í umfjöllun fréttastofu í vor kom fram að starfsfólk Lyfju hefði orðið vart við aukna eftirspurn eftir sprautum og jafnvel að fólk spyrði hvernig best væri að bera sig að við að sprauta peptíðum.
Karen Ósk Gylfadóttir framkvæmdastjóri Lyfju segir sölu og eftirspurn hafa aukist síðan þá. Hún vildi ekki gefa upp hversu mikið salan hefði aukist en sagði hana augljósa og marktæka.
Stefán Þór Arnarsson, staðgengill forstjóra Fastus , sem selur insúlínsprautur í heildsölu til lyfsölukeðja og heilbrigðisstofnana, segist einnig hafa orðið var við aukna eftirspurn á undanförnum tveimur árum. Hún sé töluverð og hafi einkum verið áberandi á síðustu tólf mánuðum.
Karen og Stefán segja bæði erfitt að fullyrða hvað valdi aukningunni eða í hvaða tilgangi hver og einn noti vöruna. Karen segir lyfjafræðinga þó hafa orðið vara við breiðari hóp kúnna sem kaupi sprauturnar. Lyfju sé umhugað að fólk vandi valið og noti vörur og lyf í ætluðum tilgangi í samráði við lækni.
Stefán bendir á að sprauturnar séu ekki eingöngu notaðar fyrir insúlín heldur einnig til að gefa fjölda annarra lyfja.
Engin gögn eru til um hversu algeng notkun ólöglegra peptíða er hér á landi samkvæmt svörum heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Helga Pálmasonar, þingmanns Flokks fólksins í gær.
Talið er að notkun þeirra sé útbreidd en þau eru oft notuð í þeim tilgangi að bæta útlit, svo sem að grennast, auka vöðvamassa eða fá brúnku. Algengast er að peptíðum sé sprautað undir húð.
Tollgæslan lagði fyrr í ár í fyrsta skipti hald á ólögleg peptíð. Sendingin kom með hraðsendingu frá Kína og var lagt hald á fimm þúsund glös af 34 tegundum ólöglegra peptíða . Í stórum hluta sýnishornanna reyndist við efnagreiningu ekki hægt að staðfesta þau virku lyfjaefni sem sagt var að varan innihéldi. Hins vegar kom í ljós að mikil óhreinindi voru í sýnishornunum.