Hreyfing mótmælenda á Ítalíu sem kennir sig við 17. október hefur boðað til mótmæla í átta borgum á Ítalíu í dag, meðal annars Róm og Mílanó. Stúdentar, vöruflutningabílstjórar og bændur hafa leitt mótmæli á Ítalíu undanfarið gegn hækkandi framfærslukostnaði, húsnæðiskostnaði og bensínverði.
Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í Mílanó um síðustu helgi. Yfirvöld hafa sent hermenn til borgarinnar til að auka eftirlit í miðborginni fyrir mótmælin í dag. Verslunareigendur hafa verið hvattir til að loka verslunum sínum í dag eftir að nokkrar verslanir voru rændar um síðustu helgi.
Ríkisstjórn forsætisráðherrans Giorgiu Meloni samþykkti fyrr í vikunni öryggistilskipun og vægari reglur um gæsluvarðhald barna undir lögaldri. Þá verður hægt að sekta foreldra barna undir lögaldri ef börn þeirra taka þátt í og valda tjóni í mótmælum.
Ríkisstjórnin hefur einnig samþykkt aðgerðir sem eiga að hjálpa vörubílstjórum og sjómönnum að takast á við hækkandi eldsneytisverð.