Heilbrigðisyfirvöld í Kenía hafa tilkynnt um annað dauðsfall af völdum ebólu. Hin látna, kona á sjötugsaldri, var skyld manni sem lést af völdum ebólu fyrr í mánuðinum. Sjö aðrir fá nú meðferð við veirunni í landinu.
Þá er ein kona á spítala í Nígeríu vegna ebólusmits. Konan, sem er svissneskur ríkisborgari, er eiginkona starfsmanns í svissneska sendiráðinu í Abuja, höfuðborg Nígeríu. Hún og eiginmaður hennar voru í Úganda nýverið en höfðu ekki farið til Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó, þar sem langflest smit ebólu hafa greinst í þessum faraldri.
Búið er að bera kennsl á 44 einstaklinga sem hún var í samskiptum við og gætu verið útsettir fyrir smiti.
Ebólutilfelli af Bundibugyo-afbrigðinu hafa nú greinst í fjórum löndum: Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Úganda, Kenía og Nígeríu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin greindi frá því í gær að fyrsta klíníska rannsóknin á bóluefni gegn ebólu, af því tilbrigði sem nú geisar, hefði hafist í gær.
Fyrsta bólusetningin var gefin í Bunia, sem er höfuðborg Ituri-héraðs í norðausturhluta Kongó, þar sem faraldurinn kom fyrst upp og fjölmörg tilfelli hafa greinst. Þetta er versti ebólufaraldur sem komið hefur upp í Kongó. 9.700 hafa greinst með veiruna og yfir 4.600 eru látnir.