BBC fjallar um málið.
Að sögn Macron er um að ræða vendipunkt í sögu franska lýðveldisins, en þarna hafi í fyrsta skiptið verið framið handahóskennt dráp af rasíksum toga.
Árásin mun hafa varað í fimmtán mínútur, þegar árásarmaðurinn skaut úr bílnum sínum og virtist miða á fólk af erlendum uppruna. Hann hefur verið handtekinn. Um er að ræða 39 ára karlmann sem hefur áður komist í kast við lögin.
Macron fór á vettvang árásarinnar í dag þar sem hann sagði fórnarlömbin hafa verið valin með litarhaft og trúarbrögð í huga.
Saksóknaraembætti sem sérhæfir sig í málum tengdum hryðjuverkum telur margt benda til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða.