„Hvað er að þér? Ertu lasinn maður? Ég held í alvörunni að það sé eitthvað að þér,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti við Andrew Feinberg, blaðamann Independent, á blaðamannafundi í Hvíta húsinu á þriðjudag. Í ítarlegri grein á vef Independent lýsir Feinberg aðdragandanum að því að forsetinn missti stjórn á skapi sínu gagnvart honum og hvað hann var að reyna að spyrja hann að.
Lýsir aðdragandanum áður en Trump missti stjórn á skapinu