Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir brýnt að móta stefnu og lagaramma utan um uppbyggingu og starfsemi gagnavera á Íslandi. Þrjú alþjóðleg fyrirtæki reka sjö gagnaver hér á landi.
Fram kom í fréttum í gær að til skoðunar væri að stækka sum þessara gagnavera og byggja minnst fimm önnur til viðbótar. Sveitarfélög víða um land hafa sýnt þessu áhuga og þegar hefur verið skrifað undir viljayfirlýsingu í Dalvíkurbyggð og á Akranesi.
Útflutningstekjur gagnavera námu rúmum fjörutíu og einum milljarði króna í fyrra samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins og hafa margfaldast á undanförnum árum.
„Mér finnst þetta hæpið, að hafa þetta á forræði sveitarfélaganna,“ segir Björg Eva. „Þetta gæti kannski verið á forræði sveitarfélaganna ef lagaramminn um það væri mjög skýr og það væri stefna í hvað við ætlum að ganga langt í þessu.“
Björg segir vaxandi andstöðu við stefnulausa uppbyggingu gagnavera víða um heim.
Hergagnaver, TikTok og mafíur
Hún segir mikilvægt að tryggja að gögn sem geymd séu í gagnaverum á Íslandi séu samfélagslega mikilvæg gögn en ekki „eitthvert rusl“.
„Það sem þarf að gera er að það þarf að ákveða hvað er það, hver er innihaldslýsingin? Hvað ætlum við að geyma?“ segir hún.
„Því gagnaver, það geta verið hergagnaver, TikTok, einhverjar mafíur í fíkniefnabransanum eða hvað sem er. Það er ekki gerður greinarmunur gerður á því hvað er í þessum gagnaverum þegar þau eru seld á markaði. Hvaða gagnaver sem er getur komið og sett sig hér niður.“