Mikið af málum endurflutt á haustþingi
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans á hægagang á þingmálum það sem af er vetri. Að meðaltali klárist um 50 mál á önn og því sé afgreiðsla mála í hefðbundnum takti.
„Það má kannski segja að við höfum verið ákveðin fórnarlömb eigin velgengni frá síðasta vori þegar við kláruðum sögulegan fjölda af málum,“ segir Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
„Þá er það einfaldlega þannig að það er verið að endurflytja mikið af málum á haustþingi og þar sem flest öll málin kláruðust síðastliðið vor, þá var ekki sami stampur sem beið eftir því sem leið á haustið.“
Málafjöldi ekki til marks um óeiningu
Aðeins hefur verið mælt fyrir rúmlega 30 af þeim tæplega 160 málum sem boðuð eru í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði pistil í Morgunblaðið í dag þar sem hún líkir dagskrá þingsins við eyðimerkurstemningu. Hægagangur sé á þingmálum sem orki tvímælis fyrir ríkisstjórn sem kalli sig verkstjórn.
Guðmundur gefur lítið fyrir þessa gagnrýni og segir þingnefndir á fullu að störfum. Að meðaltali klárist 50 mál á önn og því sé ferlið í nokkuð hefðbundnum takti. Hann segir málafjölda ekki til marks um óeiningu ríkisstjórnarflokkanna.
„Það er kannski eðlilegt og var þekkt í tíð síðustu ríkisstjórnar að mikið ósætti var milli stjórnarflokkanna og mörg mál sátu föst. Það var þekkt orðið á síðasta kjörtímabili,“ segir Guðmundur Ari.
„Þannig það kemur kannski ekki á óvart að þeir þingmenn sem voru í þeim ríkisstjórnum haldi að það sama sé uppi á teningnum núna. En svo er ekki.“