Fjörður (Fjord) er nýjasta mynd rúmenska leikstjórans Cristians Mungiu og segir frá rúmensk-norskri fjölskyldu sem flytur til þorps við norskan fjörð í leit að nýju upphafi en lenda í rannsókn barnaverndaryfirvalda þegar dóttir þeirra mætir marin í skólann.
Fullt var út að dyrum á frumsýningunni, löng röð í sjoppuna og margir góðir gestir. Menningarparið Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, sem eignuðust nýverið aðra dóttur sína saman, létu sig ekki vanta og þá voru kempurnar Gunnar Smári Egilsson og Friðrik Þór Friðriksson líka á staðnum.
Ljósmyndarinn Sunna Ben fangaði stemminguna á mynd líkt og sjá má hér að neðan.