„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“

„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“

„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“

Radchenko er einn fremsti sagnfræðingur heims um kalda stríðið en líka utanríkisstefnu Rússlands og Kína. Hann hélt tölu á friðarráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Hann hefur flókinn og áhugaverðan bakgrunn. Radchenko er sonur úkraínskra foreldra sem flúðu hungursneyðina miklu í Úkraínu 1932 til rússnesku eyjunnar Sakhalin.

Radchenko flutti að heiman fimmtán ára til Texas í Bandaríkjunum. Síðan þá hefur hann búið og starfað sem sagnfræðiprófessor víða um heim og lengi framan af var hann með tvöfaldan ríkisborgararétt, annars vegar í Rússlandi og hins vegar Bretlandi.

„Þessi samtengdi heimur minn splundraðist þann 24. febrúar 2022 þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Við það varð ég fyrir áfalli, sem varði í nokkrar vikur, og á margvíslegan hátt breytti það mér og endurmótaði mig og ég skildi að stundum verður maður að taka afstöðu. Í mínu tilviki taldi ég að það krefðist þess að ég segði skilið við tengsl mín við Rússland, við rússneska vegabréfið mitt.“

Langaði að kveikja í vegabréfinu sínu

Hann segir sitt gamla föðurland ekki skilgreina sig, fræðirannsóknir hans geri það miklu heldur. Radchenko skrifaði ítarlega grein í The Guardian um ferlið sem fór í hönd þegar hann afsalaði sér rússneskum ríkisborgararétti.

Sendiráðið gerði þér ekki auðvelt fyrir. Þú skrifaðir grein þar sem þú sagðir að þig hefði á einum tímapunkti langað að kveikja í vegabréfinu þínu.

„Hvenær hafa Rússar einhvern tímann gert eitthvað auðvelt? Þeir auðvelda aldrei hlutina, svo að auðvitað gera þeir þá erfiða.“

Honum hafi tekist ætlunarverk sitt að lokum og hann hafi náð að afsala sér rússneskum ríkisborgararétti. Radchenko fannst mikilvægt að gera það því málið varðaði sjálfsmynd hans.

Þú lýsir í þessari grein í The Guardian áfallinu sem þú varðst fyrir sem fræðimaður. Þú sást ekki þessa innrás fyrir.

„Ég skildi ekki hugsanagang Pútíns eins og ég hefði kannski átt að gera. Tilhneigingin til að setja sig í spor Pútíns og spyrja: Hvað gerði ég í þessum aðstæðum? Og svarið er: Ég myndi ekki ráðast inn í Úkraínu. En aftur á móti er ég ekki Pútín og maður þarf að reyna að sjá hvernig hann hugsaði þetta.“

Radchenko hratt þá þegar af stað viðamikilli rannsókn á sögu og kortlagningu allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu sem enn stendur yfir.

„Við það gat ég endurmetið Pútín og séð hvaðan þankagangur hans um Úkraínu spratt og það hjálpaði mér að skilja af hverju ég misreiknaði aðstæður eins og flestir greinendur og aðrir gerðu og töldu fram á síðustu stundu að þetta væri eins konar blekking eða leikur.“

En í millitíðinni hefurðu náð að rannsaka innrásina. Að hverju hefurðu komist um áform Pútíns og hans persónulega metnað?

„Pútín leit ekki á innrásina í Úkraínu sem takmark í sjálfu sér heldur sem leið til að koma á nýrri skipan öryggismála í Evrópu sem upphæfi Rússland og ynni því loksins þann sess sem Pútín fannst það ætti skilið.“

„Að baki liggur persónulegur metnaður, mikilmennskubrjálæði, öryggishagsmunir og vangaveltur um að endurmóta á einhvern hátt heimsskipanina; og sá skilningur að eina leið Rússa til þess sé með valdbeitingu, því annars „yrði þeim ekki leyft að gera það“.

„Og loks hafa sumir velt því fyrir sér að tækifærunum til þess færi fækkandi. Þannig að þú sérð að flækjustigið í þessum efnum þvældist um í huga hans þar til hann tók þá ákvörðun að beiting hervalds væri rétta leiðin til að ná markmiðunum sem hann hafði sett sér.“

Bæði Rússar og Úkraínumenn að tapa stríðinu

Meira en fjögur og hálft ár er liðið frá allsherjarinnrás Rússa.

„Bæði Rússar og Úkraínar eru við að tapa þessu stríði; það er undarleg framsetning og kannski hafa þeir þegar tapað. Hugsið bara um það út frá umfangi eyðileggingarinnar: Mun verri augljóslega hjá Úkraínu en Rússlandi. En tjón hjá Rússum hefur verið gríðarlegt og þá einkum manntjón. Að kannski hafi nú yfir milljón manna verið drepin. Þetta eru sturlaðar tölur. Og í ljósi hnignunar íbúafjöldans í Rússlandi og Úkraínu sömuleiðis má búast við að framtíðin verði dökk hjá þessum þjóðum. Evrópa stendur einnig á erfiðum krossgötum. Hún þarf að efla viðnámsþrótt sinn andspænis ótryggri framtíð. Hver sigraði? Enginn hefur sigrað. En í heildina, fimm árum síðar, er staða heimsins mun verri en hún var fyrir fimm árum. Það kemur ekki á óvart.“

Ég fæ ekki á tilfinninguna að þú sért bjartsýnn á framtíðina fyrir komandi kynslóðir?

„Þetta er ónotalegur heimur. Stríð Rússa og Úkraínu hefur verið dramatískt og líka fyrir mig. En það er ein atburðarás af mörgum. Við erum með stríðsástand í Mið-Austurlöndum og að okkur steðja aðrar ógnir, hvort sem það eru loftslagsbreytingarnar eða gervigreind. Heimurinn er yfirfullur af kjarnavopnum sem eru tilvistarógn. Ég vil vera bjartsýnn á heiminn. En ég get þó sagt að ég á tvö börn. Hefði ég vitað hvernig heimur okkar liti út í dag hefði ég ekki eignast börn. Ég held að þau þurfi að glíma við afar harðan heim.“

Mest um vert að ólíkar þjóðir tali saman

Möguleg lausn við umræddum vanda sem Radchenko varpar fram, sem er djúpstæður, felst ekki aðeins í auknu samtali og samvinnu líkt þenkjandi þjóða heldur líka ólíkra þjóða. Það sé meginlærdómur kalda stríðsins.

„Því að í heiminum ríkir ekki lýðræði. Það úir og grúir af vafasömum stjórnvöldum, alræðisstjórnum, hryllingsstjórnvöldum eins og í Rússlandi, stríðsæsingamönnum o.s.frv. Við höfum alla þessa ólíku hagsmunapotara en þeir hafa vissulega sameiginlega hagsmuni og helstu sameiginlegu hagsmunir þeirra eru að vernda jörðina, að komast hjá heimsslitum. Það er mjög auðvelt að vera sammála um það. Ég held við þurfum að sigrast á tregðu okkar til að hittast og ræða saman. Við þurfum að hittast og ræða málin. Mannkynssagan kennir okkur það. Ef við ræðum ekki saman verða átök, það verður stríð.

#hefði #heimurinn #hvernig #liti #vitað


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-23-ef-eg-hefdi-vitad-hvernig-heimurinn-liti-ut-i-dag-hefdi-eg-ekki-eignast-born-490755

📰 Aðrar fréttir

Óðinn ekki sáttur við ríkisstjórnina - „Landsbyggðin á betra skilið“
📅 23.10.2026 👁️ 0
Óðinn ekki sáttur við ríkisstjórnina - „Landsbyggðin á betra skilið“
Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans á Akureyri, formaður bæjarráðs og fyrrum fréttamaður á RÚV er ósáttur við breytingar sem gerðar verða á niðurgre...
„Við ætlum ekki að loka bókasöfnum“
📅 23.10.2026 👁️ 0
„Við ætlum ekki að loka bókasöfnum“
Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að það standi ekki til að loka bókasöfnum. Mikil umræða hefur skap...
Tillögur Lóu að ógnvekjandi búningum á hrekkjavökunni - Sjáðu myndina
📅 23.10.2026 👁️ 1
Tillögur Lóu að ógnvekjandi búningum á hrekkjavökunni - Sjáðu myndina
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasöguhöfundur, teiknari, tónlistarmaður og einn meðlima hljómsveitarinnar FM Belfast, er afkastamikil. Og reglulega birti...
Back to the Future hefði getað orðið allt önnur mynd – Sjaldséðar upptökur af upprunalega leikaranum í hlutverki Marty McFly
📅 23.10.2026 👁️ 1
Back to the Future hefði getað orðið allt önnur mynd – Sjaldséðar upptökur af upprunalega leikaranum í hlutverki Marty McFly
Kvikmyndin Back to the Future kom út árið 1985, mynd sem er löngu orðin klassík meðal kvikmyndaunnenda. Tvær myndir fylgdu í kjölfarið árin 1989 og 19...
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli
📅 23.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli
Samkvæmt nýrri og stórri könnun Maskínu tapar Sjálfstæðisflokkurinn verulegu fylgi frá síðustu könnun og er kominn niður í 21,9% en var með 25% fyrir ...
Segir stórvaxinn nýliða í landsliðinu sýna árangur starfs Aþenu - „Núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri“
📅 23.10.2026 👁️ 1
Segir stórvaxinn nýliða í landsliðinu sýna árangur starfs Aþenu - „Núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri“
Í morgun var tilkynnt um hvaða 15 leikmenn hafa verið valdir í leikmannahóp A-landsliðs kvenna í körfubolta fyrir þrjá leiki í undankeppni Evrópukeppn...
Hvíta húsið segir Melaniu Trump hafa samið um vopnahlé í Oleshky
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hvíta húsið segir Melaniu Trump hafa samið um vopnahlé í Oleshky
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur haft milligöngu um vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í bænum Oleshky í Kherson-héraði í suðurhluta Ú...
Nú má heita eftir per­sónu í Hringa­dróttins­sögu - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Nú má heita eftir per­sónu í Hringa­dróttins­sögu - Vísir
Nöfnin tvö sem nefndin hafnaði voru kvenkynsnafnið Ýsafold og karlkynsnafnið Ceaser. Nafnið Ýsafold uppfyllti ekki skilyrðið um að hafa unnið sér hefð...
Beiðni skóla­stjóra kveikti hörð orða­skipti í Hafnar­firði - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Beiðni skóla­stjóra kveikti hörð orða­skipti í Hafnar­firði - Vísir
Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður fræðsluráðs, fór yfir fyrirhugaðar öryggisúrbætur þegar málefni skólanna voru...
Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu
📅 23.10.2026 👁️ 2
Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu
Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sí...
Two arrested over smuggling endangered animals in Gran Canaria
📅 23.10.2026 👁️ 2
Two arrested over smuggling endangered animals in Gran Canaria
Two people have been arrested in Gran Canaria on suspicion of involvement in an international network trafficking protected wildlife between South Ame...
„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir
Vísir greindi frá því í gær að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar hefðu lagt fram tillögu á fundi menningarráðs þann 21. október þess efnis að ...
Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
📅 23.10.2026 👁️ 2
Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
E.coli-gerlar greindust í neysluvatni á Siglufirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Sýnið var tekið 19. október og ni...
Ráðast í út­tekt eftir að starfs­maður lenti í al­var­legu vinnu­slysi - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Ráðast í út­tekt eftir að starfs­maður lenti í al­var­legu vinnu­slysi - Vísir
Slysið varð í lok september í tengivirki Landsnets við Vatnshamra í Borgarfirði. Þetta staðfestir Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá ...
Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé - Vísir
Hvíta húsið segir að bæði Rússar og Úkraínumenn hafi samþykkt vopnahlé í og við bæinn. Þannig á að vera hægt að koma íbúum til aðstoðar og undirbúa br...
Hvetur skólastjóra til að fara í stríð við menntamálaráðherra
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hvetur skólastjóra til að fara í stríð við menntamálaráðherra
Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, hvetur skólastjóra til að standa gegn fyrirhuguðum breytingum Ingu Sæla...
Melania Trump brokers truce for Ukraine city 'on brink of disaster', White House says
📅 23.10.2026 👁️ 1
Melania Trump brokers truce for Ukraine city 'on brink of disaster', White House says
Ukraine and Russia have not confirmed the truce in Russian-occupied Oleshky, where residents have had to eat garden weeds to survive.
Why Cocktail Culture is becoming part of Tenerife’s Premium Tourism offer
📅 23.10.2026 👁️ 1
Why Cocktail Culture is becoming part of Tenerife’s Premium Tourism offer
Tenerife has long been associated with sunshine, beaches, volcanic landscapes and resort holidays. But the island’s tourism identity is becoming more ...
Þjáður af sektarkennd yfir því að hjónabandið gekk ekki upp
📅 23.10.2026 👁️ 2
Þjáður af sektarkennd yfir því að hjónabandið gekk ekki upp
Ingrid Seward ræddi samband Karls Bretakonungs, sem þá var krónprins, við Díönu prinsessu, í beinni upptöku á hlaðvarpi tímaritsins Hello, A Right Roy...
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi
Íbúar á Álftanesi hafa kært ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar um að samþykkja byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði, á næstu landareign, í veislusa...
Ætla að blása til sóknar í bóka­söfnum borgarinnar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Ætla að blása til sóknar í bóka­söfnum borgarinnar - Vísir
Tillagan kemur frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar og var tekin fyrir á fundi ráðsins á miðvikudag, 21. október. Afgreiðslu hennar var fr...
Hestvagnar bannaðir í Central Park
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hestvagnar bannaðir í Central Park
Borgarstjórn New York samþykkti í gær lög sem banna hestvagnaferðir um Central Park. Bannið tekur gildi í júní 2028. Boðið hefur verið upp á ferðir um...
Woman at centre of Cornell University rape inquiry in 'constant fear', lawyer says
📅 23.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell University rape inquiry in 'constant fear', lawyer says
The woman, known anonymously as Jane Doe, alleged she was drugged and raped by several men on Cornell's campus.
Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi
📅 23.10.2026 👁️ 2
Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi
Tugir byssueigenda hafa sótt veiðinámskeið sem Skotveiðifélag Íslands hefur haldið undanfarnar vikur. Áki Ármann Jónsson, formaður SKOTVÍS, segir það ...
Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova - Vísir
„Það er mikill gangur í framkvæmdum og spennandi tímar að fara svo að flytja,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, í samtali við fréttas...
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur
📅 23.10.2026 👁️ 2
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur Fréttin23. október 2026InnlentLeave a Comment Samsett mynd: Mæðginin Jónas Friðriksson og...
Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir
Leitað var eftir svörum um málið hjá bæjaryfirvöldum sem segja að á meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni tjái þau sig ekki um efnisatri...
„Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn - Vísir
Árásarmennirnir tveir voru báðir felldir af hermönnum eftir um tuttugu mínútna skotbardaga en yfirvöld í Ísrael segja að komið hafi verið í veg fyrir ...
Markle rýfur þögnina um meint brot föður síns
📅 23.10.2026 👁️ 2
Markle rýfur þögnina um meint brot föður síns
Meghan Markle hefur tjáð sig vegna ásakana um vörslu barnakláms sem beint er að föður hennar, Thomas Markle eldri. Það var sonur hans, Thomas Markle y...
Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“
📅 23.10.2026 👁️ 3
Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að niðurstöður úr nýrri reiknivél Framsóknarflokksins byggi á „snargölnum ...
„Álhatturinn“ Guðjón Heiðar segir fjölmiðla móta fólk eins og leikskólaleir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Álhatturinn“ Guðjón Heiðar segir fjölmiðla móta fólk eins og leikskólaleir
Guðjón Heiðar Valgarðsson, oft kenndur við hlaðvarpið Álhattinn, sakar fjölmiðla um að boða hugmyndafræði sem heilagan sannleik og úthrópa þá sem andm...
Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi
Ekki kemur til greina að fresta innleiðingu nýs einkunnakvarða fyrir 10. bekk, segir Inga Sæland menntamálaráðherra. Til stendur að innleiða kvarðann ...
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum
📅 23.10.2026 👁️ 2
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum Fréttin23. október 2026ErlentLeave a Comment Mikl...
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, state media say
📅 23.10.2026 👁️ 2
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, state media say
Another 10 people are injured in the southern Karak governorate, and a manhunt is now under way.
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, government says
📅 23.10.2026 👁️ 1
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, government says
Another 28 people are injured in the southern Karak governorate, and a manhunt is now under way.
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna
📅 23.10.2026 👁️ 3
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna Fréttin23. október 2026Innlent, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjafors...
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki“
📅 23.10.2026 👁️ 2
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki“
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki. Það sem gerðist síðasta sumar er auðvitað algjörlega óboðlegt þar sem ferðamenn fóru um ví...
Holidaymaker attacked and left unconscious after attempted mugging in Playa de las Américas
📅 23.10.2026 👁️ 2
Holidaymaker attacked and left unconscious after attempted mugging in Playa de las Américas
A tourist was knocked unconscious after being hit on the head during an alleged attempted robbery in Las Verónicas, southern Tenerife, in the early ho...
Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum - Vísir
Flugvélin, af gerðinni Piper PA-24 Comanche frá árinu 1959, var í ferjuflugi frá Bandaríkjunum til Bretlands og hafði millilent á nokkrum stöðum á lei...
Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja - Vísir
Samninganefndir Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands funduðu síðast fimmtudaginn 15. október. Nú er verið að meta mögulegar leiðir til að ná samkomu...
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins
„Það er smá eyðimerkurstemning yfir dagskrá þingsins þessa dagana,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún skrifaði pistil í ...
Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um rúm þrjú prósent milli kannana og fer úr 25,0 í 21,9 prósent, samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Greint var frá ni...
Drógu vélar­vana skútu til hafnar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Drógu vélar­vana skútu til hafnar - Vísir
Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að útkallið hafi borist um klukkan sex í gær. Áhöfn skipsins Hafdísar SK kom fólkinu á skútunni til aðstoðar á vet...
Zombies to take over Tenerife for Halloween parade
📅 23.10.2026 👁️ 3
Zombies to take over Tenerife for Halloween parade
Zombies, monsters and other creatures will take over La Laguna’s historic centre on Saturday 31st October as the Isla Calavera Zombie Walk returns for...
Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir
Þetta segir í yfirlýsingu sem Þorsteinn Már sendi Vísi vegna sýknudóms Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli hans á hendur Seðlabankanum. Niðurstaða dóm...
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
📅 23.10.2026 👁️ 2
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
Íbúar á landsbyggðinni hafa frá árinu 2020 getað nýtt sér Loftbrú við kaup á flugi innanlands. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem...
Elliði gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir mynd
📅 23.10.2026 👁️ 2
Elliði gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir mynd
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir háðslega mynd á samfélagsmiðlum en hann var í eldlínunni í vikunni f...
Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki - Vísir
Í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi í október mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn með 28,6 prósenta fylgi. Flokkurinn bætir ...
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið
📅 23.10.2026 👁️ 2
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið
„Það að tala um byggingu fangelsis sem eitthvað hefðbundið húsnæðisverkefni hjá ríkinu er ekki hægt,“ segir Halldór Valur Pálsson, sérfræðingur í dóms...
Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember
📅 23.10.2026 👁️ 2
Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember
Stefnt er að því að fulltrúar Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna ræði leiðir til stríðsloka í nóvember í Abu Dhabi, tilkynntu rússnesk stjórnvöld í m...