„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir

„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir

„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir

Vísir greindi frá því í gær að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar hefðu lagt fram tillögu á fundi menningarráðs þann 21. október þess efnis að kannað yrði hvort mætti veita sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn. 

Afgreiðslu tillögunnar var hins vegar frestað og því hvorki búið að samþykkja hana né hafna. Í tillögunni er lagt til að fjöldi og staðsetning útibúa verði metin og skoða eigi sameiningar og samnýtingu húsnæðis, aðstöðu og starfsfólks með skólabókasöfnum. Markmiðið sé að ná fram hagræðingu án þess að skerða aðgengi að bókasafnsþjónustu.

Tillöguflytjendur vilja bera saman rekstrar- og húsnæðiskostnað útibúa, aðsókn, útlán, opnunartíma og nýtingu húsnæðis. Sérstaklega verði reiknaður kostnaður á hvern gest og hvert útlán. Viðburðir og námskeið safnsins verði einnig tekin til skoðunar og kostnaður greindur við skipulagningu og framkvæmd, aðsókn og kostnað á hvern þátttakanda og metið hvort breyta eigi forgangsröðun.

Blaðamaður Vísis ræddi fyrr í dag við Rúnar Frey Gíslason, formann menningarráðs, sem sagði hugmyndina að baki tillögunni vera að efla bókasöfnin. Meirihlutinn sé í sóknarhug þegar komi að skólakerfinu, lestri og læsi, vilji efla bókasöfnin og verja fjármunum þar sem þeir skipti mestu máli.

„Við ætlum að kanna hvort hægt sé að nútímavæða söfnin og gera þau að alvöru aðdráttarafli, ekki síst fyrir börn og ungmenni,“ sagði hann.

Taldi hann orðalagið um mögulega fækkun rekstrareininga hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum. Sameining rekstrareininga geti stundum haft góð áhrif á bæði þjónustu og aðgengi.

„Það er ekkert í þessari tillögu sem segir að við ætlum að minnka þjónustuna, heldur þvert á móti ætlum við að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar. Það er ekki vanþörf á.“

„Nýja borgarstjórnin virðist hata menningu og mannúð“

Fregnirnar hafa vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum, sérstaklega meðal rithöfunda en einnig unnenda bóka og bókasafna.

„Það er menningarleg uppgjöf og hnignun að loka bókasafni. Þau gegna veigamiklu hlutverki hér og á Norðurlöndum, það á síðan að vera metnaður að gæða þau lífi og nýju hlutverki,“ skrifar rithöfundurinn Andri Snær Magnason rithöfundur um tíðindin á Facebook.

„Bókasöfn eru lífsgæði. Látið þau í friði,“ skrifar rithöfundurinn Kikka Sigurðardóttir við færsluna.

Andri Snær segir áætlanir meirihlutans menningarlega uppgjöf.Vísir/Vilhelm

Þröstur Helgason, útgefandi og ritstjóri Bændablaðsins, er orðlaus yfir vangaveltum borgarstjórnarinnar, birtir myndir af nýjum borgarbókasöfnum í Osló og Helsinki á Facebook og segir: „Í nágrannalöndum okkar líta höfuðborgirnar á bókasöfnin sem lykilstofnanir.“ 

„Menningarhatur íslensks stjórnmálafólks tekur á sig æ fjölbreyttari myndir og gengur þvert á flokka,“ skrifar hann.

Þröstur Helgason.

„Ég er ekki EIGINLEGA orðlaus. Ég er HREINLEGA orðlaus,“ skrifar rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir.

„Ég ítreka: nýja borgarstjórnin virðist hata menningu og mannúð,“ skrifar Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur, gagnrýnandi og þýðandi.

„Það er erfitt að ná utan um þetta, þetta er afhjúpandi fyrir eitthvað mjög skakkt,“ skrifar Halla Þórlaug Óskarsdóttir, rithöfundur og fyrrverandi verkefnastjóri á Borgarbókasafninu.

Steinunn og Silja eru ekki par sáttar.

„Ótrúlegt. Gæti skrifað margt og mikið en læt mér nægja að fnæsa ... í bili,“ skrifar Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður og poppfræðingur, um málið á Facebook.

„Þetta er sama liðið og hrópar hæst þegar Pisa segir börn ekki kunna að lesa sér til gagns,“ skrifar Grímur Atlason, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri Geðhjálpar, við færsluna.

Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leikskáld segir nóg komið af niðurskurði borgarstjórnar: „Krumlurnar af bókasöfnunum nýfrjálshyggjufautar!“

Dýrasta borgin verði sú leiðinlegasta

„Bókasöfnin líka?! Jæja, þá er það ákveðið: Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi. Skilja þau orðið „samfélag“? Hafa þau farið á bókasafn síðastliðin 10 ár? Þetta er síðasta þriðja rýmið! Eini staðurinn þar sem við erum öll velkomin án þess að þurfa að kaupa eitthvað,“ skrifaði Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, rithöfundur og tónlistarmaður, um tíðindin í Facebook-færslu í morgun.

„Mikið verður þessi borg ömurleg eftir að þau hafa traðkað yfir hana á lakkskónum sínum. Við erum með dýrustu borgum í heimi og bráðum verður hún sú leiðinlegasta.“ 

Lóa Hlín segir borgarstjórnina ekki viðbjargandi.Vísir/Vilhelm

„Við leyfum þessu ekki að gerast. Við þurfum að standa vörð um borgina okkar. Ég geri allt fyrir bókasöfnin,“ skrifaði rithöfundurinn Eva Rún Snorradóttir í ummælum við færsluna.

„Ég skal hlekkja mig við bókasafn áður en ég leyfi þessu liði að breyta því í gróðatækifæri!“ skrifar Salka Guðmundsdóttir leikskáld og segjast bæði Lóa og Eva til í að taka þátt í slíkum gjörningi.

„Áframhaldandi árás borgarstjórnar á menningu, listir og félagsþjónustu!! Þessi meirihluti er eyðileggingarafl sem þarf að stöðva. Þetta gerir mig brjálaða,“ skrifar Svanhvít Tryggvadóttir framleiðandi.

Tónlistarmaðurinn Halldór Eldjárn hugsar í lausnum og hvetur fólk á bókasafnið: „Besta leiðin til að lækka kostnað per gest á bókasöfnin er að fjölga gestunum, þar sem kostnaðurinn er fastur. Allir á bókasafnið!“

Halldór Eldjárn Halldór Eldjárn tónlistarmaðurVísir/Anton Brink

„Hvernig er hægt að reikna slíkt út?“

Borgarfulltrúar minnihlutans brugðust jafnframt margir við fregnunum og lýstu frati yfir áætlununum. Ekki sé hægt að reikna út kostnað við gesti bókasafna.

„Hvert erum við komin þegar sérstaklega á að fara að skoða kostnað við hvern gest bókasafna?!?! Hvernig er hægt að reikna slíkt út?“ spyr Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í borginni.

„Filistearnir láta ekki að sér hæða...“ segir Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins, um tíðindin á Facebook og vísar þar til fólks sem er andsnúið listum og menningu. Filisteunum mætti lýsa sem menningarsnauðum smáborgurum.

Sanna og Stefán furða sig á áætlunum meirihlutans.Vísir/Anton Brink/Vilhelm

„Börnin kunna og nenna ekki að lesa og þau eru að spá að fækka bókasöfnun? Og hvernig ætlar þú að skoða kostnað á gest? Bókasöfn eru notuð í svo margt annað en bara til að sækja bækur til láns. Eitt af fáu almenningsrýmum þar sem ekki þarf að taka upp veski. Og tölum ekki einu sinni um gildi bókasafna í inngildingu fyrir innflytjendur. Bjánaleg hugmynd allt í allt. Ef eitthvað mátti auka þess háttar almenningsrými,“ skrifar Maarit Kaipainen, umhverfisfræðingur og frumkvöðull við færslu Stefáns.

Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hæðist að plönum meirihlutans á Facebook, sér fyrir sér eitt risabókasafn í framtíðinni og veltir fyrir sé hvort eigi að skera næst niður í sundlaugunum.

„Ég sé þetta alveg fyrir mér. Eitt risabókasafn fyrir alla Reykjavík, í glæsilegum turni við mislæg gatnamót þar sem nóg er af bílastæðum og engin leið að komast nema á bíl. Í risabókasafninu vinnur enginn og til að fá bók lánaða þarf að sækja sérstakt app. Kaffið fór auðvitað, því það dró bara að fólk sem fékk ekkert lánað og flestir sófarnir líka þar sem fólk sat of lengi í þeim. Barnadeildin er á sjöttu hæð og lyftan er biluð. Sögustundin er spiluð af upptöku í hátalara,“ skrifar Bjarnveig í færslu á Facebook.

Birta býður sig fram í forprófkjöri.Sunna Ben

Prjónaklúbburinn, Lego-klúbburinn og hrekkjavökuföndrið verði lagt niður því þau skili engum útlánum og bækur grisjaðar eftir útlánatölfræði, sem þýði að ljóðahillan verði ansi tómleg.

„Ég fer óneitanlega að velta fyrir mér hvort sundlaugarnar verði næstar… Þar má eflaust reikna kostnað á hvern syntan metra og loka heitu pottunum fyrst, enda syndir þar enginn,“ bætir hún við.

Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, leggur einnig orð í belg og hvetur fólk til að heimsækja bókasafnið til að láta „forheimskandi kapítalið“ ekki fækka litum mannlífsins.

„Á þessum tímum, þegar mannfólkið rennir sér niður hlíðar forheimsku og ólæsis dettur stjórnmálafólki við völd í höfuðborginni í hug að lausnin að öflugra samfélagi sé að fækka tækifærum fólks til að leita sér fróðleiks, njóta samveru og stundar án stöðugs áreitis,“ skrifar Helga Vala á Facebook.

Helga Vala hvetur fólk til að fara á bókasafnið.Vísir/Vilhelm

„Þetta fólk vill fleiri Smáralindir, hoppiskopp og Ikea fyrir börnin en færri bókasöfn. Fyrir ykkur, sem viljið stuðla að velferð, hugarró, þekkingu og læsi mæli ég eindregið með að við tökum okkur nú til og heimsækjum bókasafnið okkar einu sinni í viku næstu mánuði. Þar er meðal annars hægt að leyfa börnum að leika sér í sérstöku leikhorni, setjast niður og glugga í bækur og tímarit, vinna myndbönd, fá sér kaffi, fá lánaðar bækur, listaverk og gamla DVD diska með myndum sem ekki er lengur hægt að finna á netinu og bara draga stuttlega andann í önnum dagsins. Látum ekki forheimskandi kapítalið fækka litum mannlífsins.“

#borgarstjórnarmeirihlutanum #ekki #viðbjargandi #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262952724d/-borgarstjornarmeirihlutanum-er-ekki-vid-bjargandi-

📰 Aðrar fréttir

Tillögur Lóu að ógnvekjandi búningum á hrekkjavökunni - Sjáðu myndina
📅 23.10.2026 👁️ 1
Tillögur Lóu að ógnvekjandi búningum á hrekkjavökunni - Sjáðu myndina
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasöguhöfundur, teiknari, tónlistarmaður og einn meðlima hljómsveitarinnar FM Belfast, er afkastamikil. Og reglulega birti...
Back to the Future hefði getað orðið allt önnur mynd – Sjaldséðar upptökur af upprunalega leikaranum í hlutverki Marty McFly
📅 23.10.2026 👁️ 1
Back to the Future hefði getað orðið allt önnur mynd – Sjaldséðar upptökur af upprunalega leikaranum í hlutverki Marty McFly
Kvikmyndin Back to the Future kom út árið 1985, mynd sem er löngu orðin klassík meðal kvikmyndaunnenda. Tvær myndir fylgdu í kjölfarið árin 1989 og 19...
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli
📅 23.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli
Samkvæmt nýrri og stórri könnun Maskínu tapar Sjálfstæðisflokkurinn verulegu fylgi frá síðustu könnun og er kominn niður í 21,9% en var með 25% fyrir ...
Segir stórvaxinn nýliða í landsliðinu sýna árangur starfs Aþenu - „Núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri“
📅 23.10.2026 👁️ 1
Segir stórvaxinn nýliða í landsliðinu sýna árangur starfs Aþenu - „Núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri“
Í morgun var tilkynnt um hvaða 15 leikmenn hafa verið valdir í leikmannahóp A-landsliðs kvenna í körfubolta fyrir þrjá leiki í undankeppni Evrópukeppn...
Hvíta húsið segir Melaniu Trump hafa samið um vopnahlé í Oleshky
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hvíta húsið segir Melaniu Trump hafa samið um vopnahlé í Oleshky
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur haft milligöngu um vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í bænum Oleshky í Kherson-héraði í suðurhluta Ú...
Nú má heita eftir per­sónu í Hringa­dróttins­sögu - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Nú má heita eftir per­sónu í Hringa­dróttins­sögu - Vísir
Nöfnin tvö sem nefndin hafnaði voru kvenkynsnafnið Ýsafold og karlkynsnafnið Ceaser. Nafnið Ýsafold uppfyllti ekki skilyrðið um að hafa unnið sér hefð...
Beiðni skóla­stjóra kveikti hörð orða­skipti í Hafnar­firði - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Beiðni skóla­stjóra kveikti hörð orða­skipti í Hafnar­firði - Vísir
Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður fræðsluráðs, fór yfir fyrirhugaðar öryggisúrbætur þegar málefni skólanna voru...
Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu
📅 23.10.2026 👁️ 1
Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu
Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sí...
Two arrested over smuggling endangered animals in Gran Canaria
📅 23.10.2026 👁️ 2
Two arrested over smuggling endangered animals in Gran Canaria
Two people have been arrested in Gran Canaria on suspicion of involvement in an international network trafficking protected wildlife between South Ame...
„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“
📅 23.10.2026 👁️ 1
„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“
Radchenko er einn fremsti sagnfræðingur heims um kalda stríðið en líka utanríkisstefnu Rússlands og Kína. Hann hélt tölu á friðarráðstefnu Alþjóðamála...
Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
📅 23.10.2026 👁️ 2
Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
E.coli-gerlar greindust í neysluvatni á Siglufirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Sýnið var tekið 19. október og ni...
Ráðast í út­tekt eftir að starfs­maður lenti í al­var­legu vinnu­slysi - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Ráðast í út­tekt eftir að starfs­maður lenti í al­var­legu vinnu­slysi - Vísir
Slysið varð í lok september í tengivirki Landsnets við Vatnshamra í Borgarfirði. Þetta staðfestir Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá ...
Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé - Vísir
Hvíta húsið segir að bæði Rússar og Úkraínumenn hafi samþykkt vopnahlé í og við bæinn. Þannig á að vera hægt að koma íbúum til aðstoðar og undirbúa br...
Hvetur skólastjóra til að fara í stríð við menntamálaráðherra
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hvetur skólastjóra til að fara í stríð við menntamálaráðherra
Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, hvetur skólastjóra til að standa gegn fyrirhuguðum breytingum Ingu Sæla...
Melania Trump brokers truce for Ukraine city 'on brink of disaster', White House says
📅 23.10.2026 👁️ 1
Melania Trump brokers truce for Ukraine city 'on brink of disaster', White House says
Ukraine and Russia have not confirmed the truce in Russian-occupied Oleshky, where residents have had to eat garden weeds to survive.
Why Cocktail Culture is becoming part of Tenerife’s Premium Tourism offer
📅 23.10.2026 👁️ 1
Why Cocktail Culture is becoming part of Tenerife’s Premium Tourism offer
Tenerife has long been associated with sunshine, beaches, volcanic landscapes and resort holidays. But the island’s tourism identity is becoming more ...
Þjáður af sektarkennd yfir því að hjónabandið gekk ekki upp
📅 23.10.2026 👁️ 2
Þjáður af sektarkennd yfir því að hjónabandið gekk ekki upp
Ingrid Seward ræddi samband Karls Bretakonungs, sem þá var krónprins, við Díönu prinsessu, í beinni upptöku á hlaðvarpi tímaritsins Hello, A Right Roy...
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi
Íbúar á Álftanesi hafa kært ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar um að samþykkja byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði, á næstu landareign, í veislusa...
Ætla að blása til sóknar í bóka­söfnum borgarinnar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Ætla að blása til sóknar í bóka­söfnum borgarinnar - Vísir
Tillagan kemur frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar og var tekin fyrir á fundi ráðsins á miðvikudag, 21. október. Afgreiðslu hennar var fr...
Hestvagnar bannaðir í Central Park
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hestvagnar bannaðir í Central Park
Borgarstjórn New York samþykkti í gær lög sem banna hestvagnaferðir um Central Park. Bannið tekur gildi í júní 2028. Boðið hefur verið upp á ferðir um...
Woman at centre of Cornell University rape inquiry in 'constant fear', lawyer says
📅 23.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell University rape inquiry in 'constant fear', lawyer says
The woman, known anonymously as Jane Doe, alleged she was drugged and raped by several men on Cornell's campus.
Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi
📅 23.10.2026 👁️ 2
Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi
Tugir byssueigenda hafa sótt veiðinámskeið sem Skotveiðifélag Íslands hefur haldið undanfarnar vikur. Áki Ármann Jónsson, formaður SKOTVÍS, segir það ...
Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova - Vísir
„Það er mikill gangur í framkvæmdum og spennandi tímar að fara svo að flytja,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, í samtali við fréttas...
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur
📅 23.10.2026 👁️ 2
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur Fréttin23. október 2026InnlentLeave a Comment Samsett mynd: Mæðginin Jónas Friðriksson og...
Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir
Leitað var eftir svörum um málið hjá bæjaryfirvöldum sem segja að á meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni tjái þau sig ekki um efnisatri...
„Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn - Vísir
Árásarmennirnir tveir voru báðir felldir af hermönnum eftir um tuttugu mínútna skotbardaga en yfirvöld í Ísrael segja að komið hafi verið í veg fyrir ...
Markle rýfur þögnina um meint brot föður síns
📅 23.10.2026 👁️ 2
Markle rýfur þögnina um meint brot föður síns
Meghan Markle hefur tjáð sig vegna ásakana um vörslu barnakláms sem beint er að föður hennar, Thomas Markle eldri. Það var sonur hans, Thomas Markle y...
Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“
📅 23.10.2026 👁️ 3
Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að niðurstöður úr nýrri reiknivél Framsóknarflokksins byggi á „snargölnum ...
„Álhatturinn“ Guðjón Heiðar segir fjölmiðla móta fólk eins og leikskólaleir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Álhatturinn“ Guðjón Heiðar segir fjölmiðla móta fólk eins og leikskólaleir
Guðjón Heiðar Valgarðsson, oft kenndur við hlaðvarpið Álhattinn, sakar fjölmiðla um að boða hugmyndafræði sem heilagan sannleik og úthrópa þá sem andm...
Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi
Ekki kemur til greina að fresta innleiðingu nýs einkunnakvarða fyrir 10. bekk, segir Inga Sæland menntamálaráðherra. Til stendur að innleiða kvarðann ...
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum
📅 23.10.2026 👁️ 2
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum Fréttin23. október 2026ErlentLeave a Comment Mikl...
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, state media say
📅 23.10.2026 👁️ 2
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, state media say
Another 10 people are injured in the southern Karak governorate, and a manhunt is now under way.
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, government says
📅 23.10.2026 👁️ 1
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, government says
Another 28 people are injured in the southern Karak governorate, and a manhunt is now under way.
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna
📅 23.10.2026 👁️ 3
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna Fréttin23. október 2026Innlent, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjafors...
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki“
📅 23.10.2026 👁️ 2
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki“
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki. Það sem gerðist síðasta sumar er auðvitað algjörlega óboðlegt þar sem ferðamenn fóru um ví...
Holidaymaker attacked and left unconscious after attempted mugging in Playa de las Américas
📅 23.10.2026 👁️ 2
Holidaymaker attacked and left unconscious after attempted mugging in Playa de las Américas
A tourist was knocked unconscious after being hit on the head during an alleged attempted robbery in Las Verónicas, southern Tenerife, in the early ho...
Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum - Vísir
Flugvélin, af gerðinni Piper PA-24 Comanche frá árinu 1959, var í ferjuflugi frá Bandaríkjunum til Bretlands og hafði millilent á nokkrum stöðum á lei...
Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja - Vísir
Samninganefndir Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands funduðu síðast fimmtudaginn 15. október. Nú er verið að meta mögulegar leiðir til að ná samkomu...
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins
„Það er smá eyðimerkurstemning yfir dagskrá þingsins þessa dagana,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún skrifaði pistil í ...
Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um rúm þrjú prósent milli kannana og fer úr 25,0 í 21,9 prósent, samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Greint var frá ni...
Drógu vélar­vana skútu til hafnar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Drógu vélar­vana skútu til hafnar - Vísir
Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að útkallið hafi borist um klukkan sex í gær. Áhöfn skipsins Hafdísar SK kom fólkinu á skútunni til aðstoðar á vet...
Zombies to take over Tenerife for Halloween parade
📅 23.10.2026 👁️ 3
Zombies to take over Tenerife for Halloween parade
Zombies, monsters and other creatures will take over La Laguna’s historic centre on Saturday 31st October as the Isla Calavera Zombie Walk returns for...
Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir
Þetta segir í yfirlýsingu sem Þorsteinn Már sendi Vísi vegna sýknudóms Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli hans á hendur Seðlabankanum. Niðurstaða dóm...
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
📅 23.10.2026 👁️ 2
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
Íbúar á landsbyggðinni hafa frá árinu 2020 getað nýtt sér Loftbrú við kaup á flugi innanlands. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem...
Elliði gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir mynd
📅 23.10.2026 👁️ 2
Elliði gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir mynd
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir háðslega mynd á samfélagsmiðlum en hann var í eldlínunni í vikunni f...
Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki - Vísir
Í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi í október mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn með 28,6 prósenta fylgi. Flokkurinn bætir ...
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið
📅 23.10.2026 👁️ 2
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið
„Það að tala um byggingu fangelsis sem eitthvað hefðbundið húsnæðisverkefni hjá ríkinu er ekki hægt,“ segir Halldór Valur Pálsson, sérfræðingur í dóms...
Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember
📅 23.10.2026 👁️ 2
Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember
Stefnt er að því að fulltrúar Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna ræði leiðir til stríðsloka í nóvember í Abu Dhabi, tilkynntu rússnesk stjórnvöld í m...
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar
📅 23.10.2026 👁️ 3
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar Fréttin23. október 2026InnlendarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Frjálslynda miðjan er hrunin segir fors...
Vonast til að nýtt dýralæknanám bæti mönnun á landsbyggðinni
📅 23.10.2026 👁️ 2
Vonast til að nýtt dýralæknanám bæti mönnun á landsbyggðinni
Skortur hefur verið á dýralæknum um hríð, sérstaklega á landsbyggðinni. Meðal annars hefur vantað dýralækni allt frá Kirkjubæjarklaustri austur að Bre...