Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, hvetur skólastjóra til að standa gegn fyrirhuguðum breytingum Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, á námsmati. Hann vill að þeir haldi sig við gildandi námskrá í vetur og segir þúsundir kennara standa að baki þeim verði þeir beittir hörku.
Þetta kemur fram í færslu Ragnars í opna Facebook hópnum Skólaþróunarspjallinu. Þar sakar hann ráðherra um að nota skólann í pólitískum tilgangi fyrir Flokk fólksins.
Vill halda sig við gildandi námskrá
Ragnar kallar eftir því að skólastjórar taki sameiginlega afstöðu til þess hvaða reglur eigi að gilda um námsmat á yfirstandandi skólaári.
„Nú eiga íslenskir skólastjórar einfaldlega að senda frá sér yfirlýsingu. Nám í íslenskum skólum fer fram samkvæmt aðalnámskrá og liður í því er námsmat. Námsmatið fyrir veturinn fer eftir gildandi námskrá.“
Að hans mati geti væntanlegar breytingar eða bráðabirgðaákvæði ekki komið til framkvæmda fyrr en í fyrsta lagi á næsta skólaári.
Áform ráðuneytisins gera hins vegar ráð fyrir að talnaeinkunnir taki við af bókstafseinkunnum við brautskráningu úr 10. bekk strax í vor. Í drögum sem kynnt voru 8. október er lagt til að lokaeinkunnir verði á bilinu 4–10 og einkunnin 7 merki að hæfniviðmiðum hafi verið náð. Samkvæmt drögunum eigi skólar að birta endurskoðaða skólanámskrá eigi síðar en 10. janúar.
Segir þúsundir kennara standa að baki skólastjórum
Ragnar vill að skólastjórar láti ekki undan þrýstingi vegna breytinganna.
„Og svo eiga þeir bara að taka slaginn. Ef þeir verða beittir hörku eru þúsundir kennara þétt að baki þeim.“
„Inga er löngu búin að missa klefann og skólinn er of mikilvægur til þess að vera kastað fram og til baka í einhverjum PR-stöntum fyrir Flokk fólksins.“
