Slysið varð í lok september í tengivirki Landsnets við Vatnshamra í Borgarfirði.
Þetta staðfestir Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá Landsneti, í samtali við fréttastofu. Vinna við úttektina standi yfir og liggja niðurstöðurnar því ekki fyrir. Markmið hennar er að greina atburðarásina og orsakir auk þess að leggja til úrbætur og eftirfylgni.
„Hjá Landsneti starfar samheldinn hópur og hugur okkar er hjá vinnufélaga okkar. Af persónuverndarástæðum veitum við ekki upplýsingar um heilsufar, líðan eða læknismeðferð viðkomandi,“ segir Valgeir Örn.
„Öryggi starfsfólks er ávallt í forgangi hjá Landsneti.“
Lögreglan á Vesturlandi, Vinnueftirlitið og HMS eru sömuleiðis með slysið til rannsóknar auk ytri úttektarinnar.
Jónas H. Ottósson, lögreglumaður á Vesturlandi, segir að beðið sé eftir lokagögnum áður en hægt sé að fullyrða um niðurstöðu rannsóknarinnar. Vera Einarsdóttir, upplýsingafulltrúi Vinnueftirlitsins, staðfestir sömuleiðis að rannsókn standi enn yfir hjá eftirlitinu.
Starfsmaðurinn, sem er kona á þrítugsaldri samkvæmt heimildum fréttastofu, var alvarlega slösuð eftir slysið. Hún var flutt á sjúkrahús erlendis í kjölfarið. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um líðan hennar.