Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Frjálslynda miðjan er hrunin segir forsíða Economist um óöldina í Evrópu. Brennandi borgir og götuóeirðir í Frakklandi og víðar í álfunni eru til marks um veröld sem var.
Frjálslynda miðjan eru meginstraumur vestrænna stjórnmála. Í grunninn frá lokum seinna stríðs og allsráðandi eftir lok kalda stríðsins fyrir hálfum fjórða áratug. Alþjóðahyggja er helsta einkenni frjálslyndu miðjunnar. Kími hrunsins, sem blasir við í dag, má rekja til atburða fyrir tíu árum.
Um miðjan síðasta áratug hafði ESB-Evrópa jafnað sig á bankahruninu 2008. Evran, gjaldmiðill sem varð til um aldamótin og átti að hraða samrunaþróun álfunnar, stóðst prófraunina sem var ríkisgjaldþrot Grikklands. ESB var á útþensluskeiði í austurvegi með stuðningi Bandaríkjanna. Úkraína yrði aðili að Nató og ESB-ríki innan fárra ára, hvað sem liði mótbárum Rússa. Eftir Úkraínu voru ESB og Bandaríkin með áætlanir um framtíð Rússlands. Sigurvegarar kalda stríðsins vildu innheimta verðlaunin.
Eitt vandamál kraumaði undir þorra Evrópuríkja. Lág fæðingartíðni um áratugi hraðaði öldrun íbúa álfunnar, mælt í meðalaldri, og lagði síauknar byrðar á lífeyriskerfin. Að stærstum hluta er lífeyrir í Evrópu greiddur með skattfé vinnandi fólks, kallað gegnumstreymiskerfi. (Á Íslandi eru reknir söfnunarsjóðir). Æ færri á starfsaldri stóðu undir æ fleiri lífeyrisþegum. Kerfið var ósjálfbært. Ein lausn var að hækka lífeyrisaldurinn, sem ekki var til vinsælda fallið.
Lausn frjálslyndu miðjunnar í Evrópu var að opna landamærin fyrir flóttafólki frá miðausturlöndum. Merkel kanslari Þýskalands gaf út yfirlýsingu fyrir hönd ráðandi afla. Wir schaffen das, sagði Merkel í ágúst 2015. Inn í Evrópu streymdu milljónir Afgana, Íraka og Sýrlendinga. Á árabilinu 2010 til 2025 fjölgaði íbúum ESB-ríkja með annan fæðingarstað en Evrópu um 24 milljónir. Allur þorri þeirra fór til Vestur-Evrópuríkja. Framlag þeirra til efnahagsbúskapar viðtökuríkja var minna en vonir stóðu til. Flóttamennirnir eru þurftafrekir á velferð og eiga margir erfitt með umgengni við lög og reglu. Stórinnflutningurinn skóp samfélagsvanda sem ekki sér fyrir endann á. Lífeyriskerfi álfunnar eru að þrotum komin þrátt fyrir magninnflutning á framandi vinnuafli.
Í hugmyndafræði frjálslyndu miðjunnar helst í hendur frjáls för vinnuafls og frjáls verslun. Frá árinu 2013 er unnið að víðtækasta fríverslunarsamningi sögunnar milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins, TTIP. Aðalhagkerfi vesturveldanna, sameinuð í frjálsri verslun, hefði orðið hápunktur alþjóðahyggju frjálslyndrar miðju. Alþjóðaþorpið var ekki lengur draumur heldur í seilingarfjarlægð. Svo kom Trump.
Árið 2016 er annus horribilis frjálslyndu miðjunnar. Fyrst Brexit síðan Trump. Nýkjörinn Bandaríkjaforseti stöðvaði TTIP-fríverslunarsamninginn. Ameríka fyrst, sagði hann.
Hafi fyrra kjörtímabil Trump verið þungbært frjálslyndu miðjunni er það seinna martröð. Trump-tollar kostuð ESB-Evrópu milljarða ofan á milljarða. Úkraínu-verkefnið stendur í ljósum logum. Rússar eflast og bandaríski herinn er á leið úr Evrópu. Næstu ár og áratugi liggur fyrir ESB-Evrópu að skilgreina sig upp á nýtt í breyttum heimi.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er frjálslynda miðjan hér á landi. Tilraunin til að gera Ísland að ESB-ríki var í anda gjaldþrota stjórnmálastefnu. Þjóðin sá við vélráðunum og sagði nei.
Öfgar til hægri og vinstri gætu orðið hlutskipti vestrænna ríkja eftir hrun miðjunnar. Verkefni hófsamra stjórnmálaafla er að sjá til þess að svo verði ekki. Ísland er þokkalega í sveit sett að móta öfgalausa framtíð á þjóðlegum forsendum. Sigurinn gegn ESB-aðild 29. ágúst var ágætis byrjun.