Árásarmennirnir tveir voru báðir felldir af hermönnum eftir um tuttugu mínútna skotbardaga en yfirvöld í Ísrael segja að komið hafi verið í veg fyrir hryðjuverk. Mennirnir eru sagðir hafa verið vopnaðir rifflum og skammbyssum.
Í kjölfarið lýsti Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, því yfir að hann hefði skipað forsvarsmönnum hersins að grípa til aðgerða í Hebron og undirbúa allsherjarlokun Vesturbakkans, sem hefjast á í dag.
Hermenn hafa gert nokkur áhlaup í Hebron í dag og hafa að minnsta kosti þrír verið handteknir.
Í frétt Al Jazeera segir að Netanjahú hafi hætt við alla kosningaviðburði Likud-flokksins í dag og að hann og aðrir stjórnmálamenn hafi farið til Hebron. Þar er búist við því að Ísraelar ætli sér að rífa hús í bænum og mikil spenna þar, samkvæmt blaðamanni.
Netanjahú sagði í Hebron í dag að öllu hverfinu sem árásarmennirnir koma frá verði „rústað“. Þetta sagði hann í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum.
„Fyrst og fremst, munum við rústa þessum stað. Breyta honum alfarið,“ sagði forsætisráðherrann samkvæmt Times of Israel.
Þá sagði hann að í fyrsta sinn myndu Ísraelar beita sömu aðferðum og þeir hafa beitt í flóttamannabúðum í íbúðarhverfi. Það felur í sér að flytja alla íbúa á brott og leita ítarlega í hverfinu.
„Við munum flytja alla á brott, við munum fara hús úr húsi, við munum fjarlægja vopnin héðan og allir hryðjuverkainnviðirnir verða eyðilagðir.“
Þá sagði hann að hús sem hafi verið reist án leyfis Ísraela við vegi verði jöfnuð við jörðu. Þau ógni öryggi ísraelskra hermanna.
Forsætisráðherrann gaf til kynna að þetta gæti verið gert á öllum Vesturbakkanum, sem yrði umfangsmesta aðgerð Ísraela þar síðan svæðið var hernumið árið 1967.
Mikil spenna á svæðinu
Mikil spenna er á Vesturbakkanum um þessar mundir. Ofbeldi ísraelskra landtökumanna í garð Palestínumanna á Vesturbakkanum hefur aukist til muna að undanförnu. Ráðist hefur verið á marga Palestínumenn við uppskeru og hefur ísraelski herinn gert lítið ef eitthvað til að stöðva landtökumennina.
Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú hefur fjölgað landtökubyggðum á svæðinu til muna. Þessar byggðir eru ólöglegar en á Vesturbakkanum búa nú um fimm hundruð þúsund landtökumenn og þrjár milljónir Palestínumanna.
Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, lýsti því yfir í síðasta mánuði að hann vildi að Ísraelar færu í stríð á Vesturbakkanum, leystu upp heimastjórnina og beittu þar sambærilegum aðferðum og á Gasaströndinni.