Íbúar á Álftanesi hafa kært ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar um að samþykkja byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði, á næstu landareign, í veislusal til útleigu, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Minnihluti bæjarstjórnar lagðist gegn framkvæmdunum meðal annars á þeim forsendum að þær stæðust ekki aðalskipulag og þar að auki yrði að vera deiliskipulag fyrir umrætt svæði sem ekki væri raunin.
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi