Samkvæmt nýrri og stórri könnun Maskínu tapar Sjálfstæðisflokkurinn verulegu fylgi frá síðustu könnun og er kominn niður í 21,9% en var með 25% fyrir einum mánuði. Hér er um að ræða tapað fylgi sem nemur 12% af heild á aðeins einum mánuði. Þetta er góð vísbending um að málflutningur flokksins og stuðningsfjölmiðla hans eigi ekki hljómgrunn meðal kjósenda. Haldið er uppi skefjalausum áróðri gegn ríkisstjórninni og einstöku ráðherrum og þingmönnum.
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli