Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að það standi ekki til að loka bókasöfnum. Mikil umræða hefur skapast um tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í menningarráði Reykjavíkurborgar sem vilja láta kanna það megi viðhalda eða bæta bókasafnsþjónustu með því að fækka útibúum Borgarbókasafnsins og samnýta með skólabókasöfnum. Málinu var frestað.
„Við ætlum ekki að loka bókasöfnum“