Fram kom í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í dag að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefði kallað út Björgunarfélag Akraness á sjötta tímanum í gær vegna vélarvana skútu. Björgunarskipið Kristrún á Bjargi dró skipið til hafnar en það hafði áður átt viðkomu frá Siglufirði þaðan sem það sigldi frá Grænlandi.
Mateusz Ćwikliński skipstjóri skútunnar segir í samtali við Vísi að ferðalagið frá Grænlandi hafi verið erfitt. Um er að ræða skútu sem fer með ferðalanga um Grænland yfir sumartímann. „Það var mjög mikill vindur. Það var ekki gott til sjós og öldurnar voru til mikilla trafala þar sem við vorum bara tveir.“
Hvernig er að vera tveir á svona stórri skútu?
„Frekar erfitt. Við erum virkilega þreyttir. Virkilega þreyttir. Alveg úrvinda. Venjulega erum við þrír en einn af okkur er veikur og þess vegna vorum við bara tveir.“
Vélarvandræði hafi komið upp á versta tíma. Veður hafi ekki verið gott og erfiðar aðstæður.
„Allt gerðist í einu. Við vorum mjög þakklátir að vera komnir í land því þetta var sjöundi dagurinn okkar á sjó.“
Það hlýtur að hafa tekið á?
„Já, aðeins,“ segir Mateusz. Hann segir að um sé að ræða skútu sem notuð sé í ferðaþjónustu á Grænlandi. Skútan hefji för á hverju ári í Grænlandi í mars. Fyrstu leiðangrarnir séu farnir rétt norðan við Nuuk áður en skipið heldur til austurhluta Grænlands. Skútunni sé lagt í Íslandi þar til ferðir hefjast að nýju á næsta ári.