Nöfnin Lyngrós, Aragorn, Auróra, Ragndís og Ksenía voru samþykkt með nýjustu úrskurðum mannanafnanefndar. Það voru nöfnin Enzo, Flórentína og Bessý einnig.
Þá hafa kynhlutlausu nöfnin Traust og Frill enn fremur verið samþykkt.
Nöfnunum Caesar og Ýsafold var hins vegar hafnað.
Í september voru þó nokkur nöfn færð á mannanafnaskrá. Þeirra á meðal eru kvenmannsnöfnin Vex, Scarlet, Oríana og Rae. Þá voru karlmannsnöfnin Skógur og Himbrimi einnig samþykkt.