Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans á Akureyri, formaður bæjarráðs og fyrrum fréttamaður á RÚV er ósáttur við breytingar sem gerðar verða á niðurgreiðslu ríkisins til íbúa á landsbyggðinni á fargjöldum í innanlandsflugi. Segir hann þetta bætast ofan á yfirvofandi hækkun kílómetragjalds og þetta tvennt auki mjög byrðarnar á íbúa á landsbyggðinni.Óðinn skrifar á Facebook:„Fyrst hækka kílómetragjöld um 16% og nú á að skerða Loftbrú. Landsbyggðin á betra skilið en falleg orð um mikilvægi hennar á sama tíma og reikningarnir hækka sífellt.“
Óðinn ekki sáttur við ríkisstjórnina - „Landsbyggðin á betra skilið“