Þetta kemur fram í nýrri kynningu á framkvæmdum og hönnun Hlemms sem lögð var fyrir umhverfis- og skipulagsráð á miðvikudag. Reykjavíkurborg hefur nú birt myndir af fyrirhuguðu útliti svæðisins.
Klukkuverkið enn í hönnun
Verkhönnun vesturhluta Hlemms er lokið og útboðsgögn eru í vinnslu. Þar er meðal annars gert ráð fyrir endurkomu klukkuturnsins, en hönnun klukkuverksins er enn ólokið verkefni.
Aðstaða fyrir sorp mathallarinnar verður bætt og komið fyrir töskugeymslu. Þá verður gróðri og setaðstöðu komið fyrir við húsið.
Norðurpóll lækkaður til að komast hjá römpum
Nánari útfærsla á svæðinu við Norðurpól felur í sér að húsinu verður að hluta sökkt niður. Þannig á að uppfylla aðgengiskröfur og komast hjá óþörfum römpum á torginu. Fyrir framan húsið verður aðstaða fyrir útiveitingar.
Leikhöllin verður austan við Norðurpól. Grunnurinn er kominn og leiktækin eru á leið til landsins. Inni í stálgrindinni verða meðal annars gular rennibrautir og leiksvæði fyrir yngstu börnin á jarðhæð.
Grindverk verður milli leikhallar og Norðurpóls til að gæta öryggis barna, enda mun Borgarlínan liggja meðfram byggingunum.
Áætlað er að framkvæmdum við rýmið umhverfis leikhöllina og við Þverholt ljúki fyrir komandi áramót, samkvæmt kynningunni.
Á torginu verður einnig svið fyrir viðburði og uppákomur.
Hjólahús við Gasstöðina
Við Gasstöðina á Rauðarárstíg verður hjólahús. Byggingin verður einnar hæðar skýli með hjólastæðum á tveimur hæðum innandyra.
Borgin hyggst kanna áhuga mögulegra rekstraraðila á húsinu.
Stálklætt mannvirki á torginu
Á torginu verður einnig reist mannvirki fyrir stjórnbúnað lagna og snjóbræðslu. Það verður með áferð úr póleruðu stáli og á kynningarmynd sést hvernig lýsing og setaðstaða verða hluti af umhverfi þess.
Norðurhlutinn tilbúinn í lok næsta árs
Framkvæmdir við norðurhluta Hlemms og aðstöðu fyrir Borgarlínu eiga að hefjast á næstu dögum. Samið hefur verið við Gröfu og grjót um verkið og áætlað er að þessum áfanga ljúki í lok árs 2027.
Þar verða stöðvar og sérrými fyrir almenningssamgöngur ásamt endurgerðu torgsvæði. Samhliða verða lagnir endurnýjaðar og gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu endurgerð.