Þetta staðfestir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang.
Slysið varð á brú á Breiðholtsbrautinni sem liggur yfir Reykjanesbrautina.
Áttu myndir frá vettvangi? Sendu okkur fréttaskot.
Ekki liggur fyrir hversu margir lentu í slysinu en tilkynningin barst klukkan tíu mínútur yfir fjögur. Fyrstu lýsingar benda ekki til þess að einhver hafi slasast alvarlega.
Áttu myndir frá vettvangi? Sendu okkur fréttaskot.