Alþingi er óvenjulegur vinnustaður þar sem starfið gengur í raun út á átök. Átök í þingsal standa hins vegar ekki í vegi fyrir góðu sambandi pólitískra andstæðinga, jafnvel vinasambandi. Það er enginn fótur fyrir því að stirt samband sé milli ráðherra Viðreisnar eða milli ráðherranna og þingflokksins. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Pawel Bartoszek: Ekkert til í því að stirt samband sé milli þingmanna og ráðherra Viðreisnar