70 þúsund lögreglumenn og þjóðvarðarliðar hafa verið kallaðir til um helgina í Frakklandi.
Frönsk stjórnvöld gera það til að tryggja öryggi íbúa vegna fyrirhugaðra mótmæla og óeirða.
Borgarstjórar hafa leyfi til að setja á útgöngubann, þúsundir hafa verið handteknir og Viðskipta- og iðnaðarráð Frakklands telur að tjón geti hlaupið á hundruðum milljóna evra.
Louvre-safninu lokað um helgina
Louvre-safninu í París verður lokað um helgina ásamt fjölda ferðamannastaða. Verslanir og fyrirtæki hafa sett upp varnir fyrir glugga til að verja húsnæði sitt fyrir skemmdum.
Mótmælin byrjuðu í París um miðjan september og breiddust út um Frakkland. Þau brutust út þegar framhaldsskólanemar kröfðust betri aðbúnaðar í skólum en nú snúa mótmælin í auknum mæli gegn stjórnvöldum.
Miklar óeirðir brutust út síðustu helgi og skemmdir voru unnar á byggingum. Stéttarfélög, háskólanemar og umhverfissinnar höfðu bæst í hóp mótmælenda ásamt Gulu vestunum, svokölluðu.
Gulu vestin hafa boðað til áframhaldandi mótmæla um helgina. Útgöngu- og samkomubann hefur verið sett á í nokkrum hverfum Parísar.
Emmanuel Macron, Frakklandsforseti, segir öll mótmæli um helgina verða stöðvuð.