Víða hefur orðið rafmagnslaust á Suðurlandi í haust vegna áflugs álfta og gæsa á rafmagnslínur. Slíkt áflug, og rafmagnsleysi vegna þess, er ekki óalgengt á þessum árstíma en þau verða þegar fuglarnir flytja sig til á vorin og haustin.
Guðrún Vaka Helgadóttir upplýsingafulltrúi Rarik segir að mikið hafi unnist hjá fyrirtækinu í að fækka truflunum af þessu tagi með því að leggja línur í jörð.
„Við höfum lagt áherslu á að setja í jörð línur þar sem mikið hefur verið um að fuglar fljúgi í þær,“ segir Guðrún.
Suðurlandið og kornakrar vinsælustu áfangastaðirnir
Þau svæði sem verða helst fyrir truflunum vegna áflugs eru svæði nærri Höfn, Kirkjubæjarklaustri, í Vestur-Landeyjum og í Flóanum. Guðrún segir að þó að vel hafi gengið að grafa línur í jörð séu enn eftir línur sem virðast lenda í vinsælum flugleiðum fugla.
„Það sama er uppi á teningnum á afmörkuðu svæði á Mýrum á Vesturlandi. Þar eru línur nærri kornökrum sem álftir og gæsir sækja í.“
Töluvert hefur fjölgað í álftastofninum hérlendis undanfarin ár, þetta segir Ólafur Einarsson, fuglafræðingur, framhaldsskólakennari og sérfræðingur í álftum. Álftir og gæsir hafa ekki einungis valdið rafmagnsleysi heldur hafa þær einnig plagað kornbændur sem kvartað hafa undan ágengni fuglanna í kornakrana.
Rafmagnstruflanir sem verða af völdum álfta og gæsa eru alltaf fyrirvaralausar en sem betur fer stuttar.
„Við erum ávallt að skoða leiðir og lausnir til að minnka áhrif áflugs á viðskiptavini okkar. Sú áhrifamesta er auðvitað að leggja strengi í jörð,“ segir Guðrún.
Guðrún segir að tilfellum áflugs hafi ekki beint fjölgað heldur hafi tilkynningum fyrirtækisins til viðskiptavina fjölgað; í dag sé mun auðveldara að vita hvað valdi rafmagnsleysi.