Öryggisgalli í PHP-forritunarmálinu ógnar enn vefsíðum víða um heim. Fagstjóri hjá CERT-IS segir ástandið enn alvarlegt en að hinn almenni borgari þurfi þó ekkert að aðhafast.
Gallinn kom í ljós á miðvikudaginn og voru fjölmargar íslenskar vefsíður og kerfi berskjölduð. Alvarleiki gallans var metinn sem 9,2 af skalanum 10.
Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri CERT-IS, segir ógnina ekki yfirstaðna og brýnt sé að þeir sem reki vefsíður séu áfram á tánum. Einhverjir hafi haft samband við CERT-IS en þeim sem reki vefsíður hafi verið bent á að fylgja leiðbeiningum hjá þeim sem halda úti PHP. Ógnin sé ekki yfirstaðin fyrr en allir hafi uppfært kerfi sín.
„Það var eitthvað tekið eftir því einmitt að íslenskir vefir voru teknir niður annaðhvort til að bíða eftir uppfærslunni eða til að uppfæra eftir að uppfærslan kom út og það voru bara góð og rétt viðbrögð“
Óprúttnir aðilar gætu komist í persónuupplýsingar
Spurður hvort almenningur þurfi að aðhafast eitthvað svarar Bjarki neitandi.
En er þetta samt galli sem getur orðið til þess að einhverjir óprúttnir aðilar komist yfir persónuupplýsingar eða einhvers konar gögn um einstaklinga?
„Já. Því miður er þessi galli þannig að hann gæti gert ógnaraðilum það kleift ef þeir kæmust inn á vef og gætu þá brotist áfram innar í kerfi þess sem tengist vefnum. Þá gætu upplýsingar þar verið í húfi. Þetta er ótrúlega alvarlegt hvað það varðar.“
Bjarki segir þó engin staðfest tilvik um innbrot út frá þessum veikleikum enn sem komið er. Veikleikarnir hafi ekki enn ratað inn á lista yfir þekkta misnotaða veikleika en hann geri ráð fyrir því að þeir rati þangað á endanum.
„Góðu fréttirnar hingað til eru samt að veikleikarnir séu ekki komnir þangað inn þegar það er komið að þá erum við fyrst komin með staðfest tilvik af innbroti. Það er þá bara á heimsvísu og við erum að fylgjast með fregnum alls staðar úr heiminum til að til að vera svolítið á tánum.“