Sigmar Guðmundsson sneri aftur á þingið úr veikindaleyfi í dag. Varaþingmaður hans, Valdimar Breiðfjörð Birgisson, víkur þar af leiðandi af þingi.
Sigmar hefur verið í veikindaleyfi í upphafi þings. Hann var þingflokksformaður Viðreisnar en Pawel Bartoszek tók við embættinu fyrr í mánuðinum.
Samkvæmt tilkynningu frá Viðreisn óskaði Sigmar eftir að taka að sér önnur verkefni á þingi þegar hann sneri aftur til starfa.