Vífill Karlsson og Sveinn Agnarsson lögðust yfir gögn frá árunum 2008-2024 fyrir nýja rannsókn Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum um strandveiðar og byggðakvóta. Vífill, sem er prófessor við Háskólann á Bifröst, segir þá hafa lagt upp með að meta hvort aukin umsvif vegna slíkra veiða leiði til aukinna atvinnu- eða útsvarstekna viðkomandi sveitarfélaga. Á meðan á rannsókninni stóð hafi hún víkkað út til fleiri hagvísa, svo sem atvinnuleysis, íbúaþróunar, búferlaflutninga, misskiptingar launa, íbúðaverðs og fjölda seldra íbúða.
„Við skoðuðum fimm stærstu kerfin, það sem kallaðir eru pottar í íslenski fiskveiðistjórnunarkerfi eða 5,3% hlutinn. Honum hefur verið beitt til að bregðast við óæskilegri þróun í sjávarplássum eftir að kvótakerfið kom,“ segir Vífill.
Ráðherra boðar heildarendurskoðun
Fimm stærstu kerfin eru almennur byggðakvóti, sértækur byggðakvóti, skel- og rækjubætur, línuívilnun og strandveiðar. Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur boðað heildarendurskoðun á hvernig þessum 5,3% af aflaheimildum er útdeilt. Samkvæmt þingmálaskrá er von á frumvarpinu í nóvember.
Síðustu tvö fiskveiðiár, eftir það tímabil sem er til rannsóknar, hefur mun minni aflaheimildum verið úthlutað í línuívilnun og rækju- og skelbætur en árin áður. Úthlutanir til strandveiða jukust undir lok tímabilsins sem er til rannsóknar en hafa síðan þá verið enn stærra hlutfall af 5,3% kerfinu.
Sértæki byggðakvótinn kemur best út
Vífill segir rannsóknina sýna að aflaheimildir sem er úthlutað til sjávarplássa stuðli að hærra útsvari. Þegar mismunandi ráðstafanir eru skoðaðar sýndi ein leiðin sérstaklega jákvæða fylgni.
„Af þeim fimm stærstu er sértæki byggðakvótinn að koma langbest út. Það eru sterkustu vísbendingarnar fyrir jákvæðum byggðaáhrifum af stjórnun hans og veitingu slíkra heimilda,“ segir Vífill.
Niðurstöður fyrir aðrar byggðaaðgerðir voru mun óljósari. Áhrif byggðaaðgerðanna ekki marktæk eða í sumum tilvikum neikvæð. „Það voru línuívilnun, almenni byggðakvótinn og strandveiðarnar,“ segir Vífill.
Í sjávarútvegsplássum sem höfðu sértækan byggðakvóta var marktækt jákvæð fylgni milli úthlutana og útsvars- og atvinnutekna, íbúaþróunar og fjölda seldra íbúða. Þá var minna atvinnuleysi. Sérstaka athygli vekur að áhrifin á atvinnutekjur voru meira en tvöfalt sterkari hjá konum en körlum.
Vífill bendir á að konur séu hlutfallslega fleiri í landsvinnslu og sértæka byggðakvótanum fylgi kvaðir um vinnslu í bænum. Hann tekur þó fram að rannsóknin taki til fleiri þátta en tekna.
„Jafnvel þó að konur mælist hærra í atvinnutekjum þá eru áhrifin á karla víðtækari.“
Sértæki byggðakvótinn áreiðanlegasta tækið
Aðspurður hvaða ályktanir megi draga af niðurstöðum rannsóknanna segir Vífill: „Ef þú vilt í rauninni nýta þennan 5,3% pott til að styðja við byggðaþróun í viðkvæmustu sjávarbyggðunum um land allt þá er í rauninni sértæki byggðakvótinn áreiðanlegasta tækið til þess. Hin kerfin, það bendir allt til þess að þau séu í ruan ekki gott stjórntæki í þeim tilgangi.“
Hann bendir þó á að þetta séu niðurstöður fyrir landið í heild. Séu sérstök sveitarfélög tekin fyrir geti dæmið litið öðruvísi út.
Rýna þarf í stöðu hvers sveitarfélags fyrir sig
„Við sjáum til dæmis að Kaldrananeshreppur, sem er lítið viðkvæmt samfélag á Ströndum, er til dæmis rosalega stórt í línuívilnun,“ segir Vífill.
Þar hafi skerðing í línuívilnun talsverð áhrif þó að áhrifin á landsvísu yrðu væg. Því þurfi að rýna í stöðu hvers sveitarfélags fyrir sig.
Einnig þurfi að líta til þess hversu þungt sjávarútvegurinn vegur hlutfallslega samanborið við aðrar atvinnugreinar. Í tilviki Kaldrananeshrepps eru um 35% af heildarútsvarstekjum hreppsins af sjávarútvegi.