Reykjaböðin voru formlega opnuð 5. september síðastliðinn en þau eru staðsett fyrir neðan Kamba í Hveragerði. 40 starfsmenn vinna í böðunum. Það hefur verið meira en nóg að gera frá því að böðin voru opnuð. Jóhanna Hreiðarsdóttir er framkvæmdastjóri baðanna.
„Við erum bara að fá virkilega góð viðbrögð, sérstaklega hér úr nærsamfélaginu og hjá Íslendingum, sem við erum virkilega ánægð með og síðan eru líka mjög margir forvitnir erlendir ferðamenn. Fyrst um sinn þá eru þetta um 70 prósent Íslendingar, sem er mjög ánægjulegt,” segir Jóhanna.
Í óformlegri könnun hjá forsvarsmönnum nokkurra baðlóna víðs vegar um landið kom fram að yfirleitt er helmingur gesta erlendir ferðamenn. Bláa lónið sker sig reyndar algjörlega úr en þar eru um 95-98% gesta erlendir ferðamenn.
Hvernig lýsir Jóhanna Reykjaböðunum fyrir þá sem ekki þekkja til?
„Reykjaböðin eru baðlón, heilsulind og í rauninni bara upplifun, ný upplifun og nýr áfangastaður fyrir innlenda og erlenda ferðamenn á Íslandi,” segir Jóhanna.
Jóhanna segir að böðin séu fyrsti áfangi í 11 þúsund fermetra heildstæðri uppbyggingu en þegar hún verður fullbúin verður hægt að taka á móti 700 þúsund gestum á ári. Baðhús og heilsulind eru líka í Reykjaböðunum með gufubaði, jurtalaug og snjóherbergi svo eitthvað sé nefnt.
Og þið eruð ekki nærri búin, þið ætlið að halda áfram að fjárfesta og byggja?
„Já, þessa dagana er núna verið að setja upp hótelbústaði, sem er gisting bæði auðvitað fyrir innlenda og erlenda ferðamenn, sem er skemmtileg viðbót. Og síðan er frekari uppbygging fyrirhuguð á böðunum áráðstefnu- og viðburðarými.”
Af hverju ætti fólk að koma í Reykjaböðin?
„Fólk ætti að koma í Reykjaböðin til þess að upplifa náttúruna á annan hátt,” segir Jóhanna.