Hvíta húsið segir að bæði Rússar og Úkraínumenn hafi samþykkt vopnahlé í og við bæinn. Þannig á að vera hægt að koma íbúum til aðstoðar og undirbúa brottflutning þeirra.
Forsetafrúin og teymi hennar eru sögð hafa miðlað málum milli Rússa og Úkraínumanna um skilyrði vopnahlésins, tímasetningar og annað.
Í yfirlýsingu Hvíta hússins er haft eftir Melaniu Trump að borgaralegir fulltrúar beggja ríkja muni heimsækja íbúa og kanna hvurslags aðstoð þeir þurfa. Þeir sem vilja fara frá bænum muni fá að fara þaðan og verði aðstoðaðir.
Fregnirnar hafa ekki verið staðfestar af yfirvöldum í Úkraínu og í Rússlandi.
Sjá einnig: Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir
Forsetafrúin segist búast við því að einhverjir íbúar muni vilja fara til Rússlands og aðrir á annan stað í Úkraínu.
Enn fremur segist hún hafa fengið samþykkt að óháð fjölmiðlafólk muni fá að fylgja áðurnefndum fulltrúum og skrásetja ferlið. Það eigi að tryggja að farið verði eftir óskum íbúa.
https://t.co/7SCCBYIYZR https://t.co/E2pZCGriHe
— First Lady Melania Trump (@FLOTUS) October 23, 2026
Hræðilegar aðstæður í Oleshky
Oleshky hefur verið undir stjórn Rússa frá því þeir hófu innrásina í Úkraínu í febrúar 2022. Undanfarna mánuði hafa ítrekað borist fregnir af hræðilegum aðstæðum þar. Íbúum hefur skort mat og aðrar nauðsynjar og hafa borist fregnir af því að fólk sé að borða gras og jurtir til að reyna að halda lífi.
Rússar eru sagðir hafa umkringt bæinn með jarðsprengjum og þar að auki eru ítrekað gerðar drónaárásir gegn honum og hefur aðstæðum í bænum verið lýst sem „helvíti á jörðu“.
Sjá einnig: Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi
Ráðamenn í Rússlandi hafa viðurkennt að ástandið hafi verið slæmt en sakað Úkraínumenn um að bera ábyrgð á því.
Tatyana Guðbjörgsdóttir, sem hefur búið á Íslandi frá því hún var ellefu ára gömul, sagði í samtali við Vísi í byrjun mánaðarins að hræðilegt væri að horfa upp á aðstæður í heimabæ sínum, Oleshky.
Þá voru faðir hennar, föðurbróðir og amma enn föst í bænum.
„Maður hugsar á hverjum einasta degi hvort maður fái símtalið í dag, eða í dag, eða hvort það sé á morgun. Um að eitthvað hafi skeð eða einhver hafi verið drepinn. Þetta er mjög erfitt. Það er mjög erfitt andlega og tekur miklu meira á en maður heldur.“
Tatyana sagði frá því þegar árásir voru gerðar á heimili þeirra með drónum. Fyrst hafi tveir sprungið fyrir utan húsið.
„Þá náttúrulega springa gluggar og allt. Síðan flýgur einn dróni inn í herbergi og springur þar og tveir í viðbót. Pabbi minn og frændi minn náðu að fela sig. Þeir fóru undir baðkar en amma mín, hún er svolítið gömul og lítið hreyfanleg þannig að hún bara sat og sá þetta allt en hún fór líka verst úr þessu. Hún fékk sem sagt eitt brot af dróna í fótinn á sér og er á spítala núna. Að vera á spítala í Oleshky er frekar tilgangslaust þar sem það er ekkert, engin lyf eða neitt til að veita fólki hjálp.“
Hún sagði einnig að hver dagur væri barátta upp á líf og dauða. Enginn matur væri í bænum og íbúar þyrftu að velja milli þess að svelta í hel eða hætta sér í svaðilför út fyrir bæjarmörkin.
„Það er enginn matur. Það hefur ekki verið fluttur matur í bæinn síðan í apríl. Og það er ekkert ljós, það er ekkert drykkjarvatn, ekkert rafmagn, ekkert gas. Þannig að síðast þegar ég heyrði í frænda mínum og fékk að vita að þeir væru að borða gras úr garðinum og snigla. Þá hafa þau reynt að fara í annan bæ sem er nálægt til að ná í mat og þurftu að labba í fjóra daga fram og til baka. Á þessum fjórum dögum höfðu þeir þurft að fela sig tvisvar fyrir dóna sem var að reyna að skjóta þá og drepa þá.“
Millifyrirsögn