Flugvélin, af gerðinni Piper PA-24 Comanche frá árinu 1959, var í ferjuflugi frá Bandaríkjunum til Bretlands og hafði millilent á nokkrum stöðum á leiðinni. Um borð voru flugmaður og hundur hans.
Vélin tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 22.54 þann 26. maí 2025 áleiðis til Wick í Skotlandi. Um ellefu mínútum síðar, í klifri í 5.300 feta hæð suðvestur af Sandskeiði, bilaði hreyfillinn, skrúfan stöðvaðist og framrúðan huldist olíu.
Flugmaðurinn lýsti yfir neyðarástandi og beindi vélinni í átt að þjóðvegi 1. Sandskeiðsflugvöllur var næsti flugvöllur þegar hreyfillinn bilaði. Flugmaðurinn var ekki kunnugur staðháttum og virðist ekki hafa orðið flugvallarins var.
Hann flaug yfir flugbrautina í 4.100 feta hæð án þess að veita henni athygli, enda einbeitti hann sér að því að finna stað til að nauðlenda á veginum.
Flugstjórn á Reykjavíkurflugvelli lagði til að hann reyndi að svífa aftur til Reykjavíkurflugvallar en flugmaðurinn taldi sig ekki ná þangað í tæka tíð. Hann ákvað því að nauðlenda á beinum kafla vegarins, á móti vindi. Hann var óviss um undirlagið á svæðinu við veginn og taldi umferð litla.
Við lendinguna rakst hægri vængur flugvélarinnar í umferðarskilti og skrapaðist við vegrið. Hvorki flugmaðurinn né hundurinn slösuðust en flugvélin skemmdist mikið. Atvikið var flokkað sem flugslys. Ökumenn aðstoðuðu við að koma flugvélinni af veginum eftir lendinguna.
Suðuviðgerð olli bilun í hreyflinum
Í skýrslunni kemur fram að hreyfillinn hafi verið endurbyggður fjórum vikum fyrir slysið og aðeins verið notaður í 38 klukkustundir eftir endurbygginguna.
Hreyfillinn hafði verið tekinn úr vélinni og sendur í skoðun og endurbyggingu. Því fóru engar árlegar skoðanir fram á árunum 2022 til 2024. Sveifarhúsið hafði verið lagfært með suðu hjá bandaríska fyrirtækinu Divco og lauk þeirri viðgerð í mars 2023.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa lét taka hreyfilinn í sundur hjá framleiðanda hans og var rannsóknarstjóri nefndarinnar viðstaddur. Sveifarhúsið var brotið og umtalsvert magn málmagna fannst í olíupönnunni. Á sveifarásnum voru merki um mikinn hita og ónæga smurningu. Þá hafði tengistöng brotnað frá sveitarásnum og lega hennar var eyðilögð.
Mæla með leiðbeiningum fyrir suðuviðgerð
Rannsakendur skoðuðu olíugöngin og fundu stíflu í göngum í miðju sveifarhússins. Þar sáust einnig merki um slípun og bráðið ál eftir suðuviðgerð.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að suðuviðgerðin hefði stíflað olíugang í sveifarhúsinu og að það hefði valdið bilun í hreyfli.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Nefndin hvatti Divco til að yfirfara skýrsluna og gera nauðsynlegar breytingar til að koma í veg fyrir að olíugöng stíflist aftur við suðuvinnu.
Bandarísku flugmálastofnuninni (FAA) og Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins (EASA) var jafnframt ráðlagt að gefa út leiðbeiningar um mikilvægi þess að suðuviðgerðir skaði ekki olíugöng eða aðra hluta smurkerfis hreyfla.
Skýrsluna sem er á ensku má lesa hér að neðan (PDF).
Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.