Farið verður yfir niðurstöður könnunarinnar í hádegisfréttum Bylgjunnar með Hafsteini Einarssyni stjórnmálafræðingi sem segir fylgistap Sjálfstæðismanna óvenjulegt.
Samningaviðræður Icelandair við flugmenn og flugvirkja hafa engan árangur borið en fjögurra vikna frestur til að ná samningum rann út í vikunni. Verkfall flugvirkja í september skerti rekstrarhagnað Icelandair um hundruð milljóna.
Forstjóri Stofnunar atvinnuvega vonast til að lágmarka allt hökt þegar stofnunin tekur til starfa en ekki er búið að ráða alla heilbrigðisfulltrúa til starfa hjá ríkinu sem sagt var upp um mánaðamótin.
Þá verður rætt við varaformann Skotvís en rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag.
Í íþróttunum fjöllum við um sigurhátíð Blika í kvöld og leiki þriðju umferðar Bónus-deildar karla þar sem Íslandsmeistararnir komust loksins á sigurbraut.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.