Breska götublaðið The Sun greinir frá því að hinn 82 ára Thomas Markle eldri hafi verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir Megan. Sonurinn hafi uppgötvað efnið á heimili föðurins í Cebu í Filippseyjum og tilkynnt það bæði til lögreglunnar og Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI).
Meghan Markle, leikkona, hertogaynja af Sussex og eiginkona Harrys Bretaprins, brást við fréttaflutningnum með yfirlýsingu þar sem hún sagðist hafa frétt af ásökununum árið 2018.
„Ég er í miklu uppnámi yfir fréttunum sem hafa komið í ljós á síðasta sólarhring og hugur minn er hjá þeim börnum sem gætu hafa hlotið skaða af,“ sagði hún í yfirlýsingunni.
„Árið 2018 var bréf sent til Lundúnalögreglu og Verndar konungsfólks og sérfræðinga (e. Royalty and Specialist Protection). Því bréfi var í kjölfarið deilt með mér. Í því voru óhugnanlegar ásakanir á hendur föður mínum og var ég fullvissuð um að verið væri að rannsaka þær,“ sagði Markle jafnframt.
„Ég vona að fólk skilji núna, þrátt fyrir afbakanir ákveðinna fjölmiðla í gegnum árin, að fjarlægð mín frá föður mínum og ákvörðun um að leyfa honum ekki að hafa samband við börn okkar var af einni ástæðu: til að vernda þau,“ sagði Markle.
Sjá einnig: „Hættu að ljúga“
Megan er eina dóttir Thomasar Markle eldri og Doriu Ragland en hann á börnin Thomas og Samönthu með fyrstu konu sinni, Roslyn Loveless. Meghan sleit sambandi við föður sinn árið 2018 þegar hún gifti sig inn í bresku konungsfjölskylduna, sama ár og barnaníðsefnið fannst.
„Þrátt fyrir að umfang þess sem nú hefur komið í ljós sé ógeðslegra en maður gæti ímyndað sér þá vona ég innilega að réttlætinu verði fullnægt og að öryggi og vernd saklausra barna sé í forgangi,“ sagði Markle.
„Mörg hundruð“ barnaníðsmyndir
Barnaníðsefnið á að hafa fundist í fjórum stórum kössum sem Thomas yngri segir hafa innihaldið „mörg hundruð, ef ekki þúsundir“ barnaníðsmynda. Jafnframt segist hann hafa fundið myndefni af stúlkum „varla eldri en tíu-ellefu ára“ í kynferðislegum athöfnum og fimmtán mínútna myndband af allsberum stúlkum á síma föðurins.
Á skjáborði borðtölvu föðurins hafi verið „raðir á raðir ofan“ af smámyndum (e. thumbnail pictures) sem sýndu „það versta af því versta“ að sögn Thomasar yngri. Ekki nóg með það heldur hafi hann fundið gamlar bækur sem reyndust vera fullar af „litlum nöktum stúlkum,“ þar á meðal eina af fullorðnum manni stunda kynlíf með mjög ungri stúlku.
„Mér varð óglatt við það sem ég sá, öllu þessu dóti var dömpað á mig og ég vissi ekki hvað ég ætti að gera,“ sagði Markle yngri við The Sun.
„Ég vissi samstundis að þetta væri ólöglegt og ég myndi enda í fangelsi ef ég losaði mig ekki við það. Ég upplifði mig svikinn, reiðan og fylltist viðbjóði og áttaði mig á því að ég þyrfti að tilkynna hann.“
Hann hafi tilkynnt uppgötvunina til Alríkislögreglunnar, bandarískrar miðstöðvar fyrir misnotuð og týnd börn og ríkislögreglu Pennsylvaniu-ríkis en Thomas eldri bjó þar á þeim tíma. Samkvæmt The Sun hyggst Alríkislögreglan hefja eigin rannsókn og sé í samskiptum við rannsóknarlögregluna í Filippseyjum.
Faðirinn neitar og systirin segir ásakanirnar hefndaraðgerð
Thomas Markle eldri neitaði ásökununum í samtali við breska götublaðið The Daily Mail og lýsti þeim sem lygum. „Ég er í áfalli, ég er særður og ég er í miklu uppnámi yfir því að sonur minn skuli saka mig um þetta,“ sagði hann.
Samantha Markle, hálfsystir Meghan, segir bróður þeirra hafa skáldað ásakanirnar til að græða pening og ná sér niður á föður þeirra. Þegar uppgötvunin var gerð hafi Thomas eldri ekki haft aðgang að tölvunum í tvö ár.
„Þetta eru tilhæfulausar ásakanir og bróðir minn er ógeðslegur fyrir að skálda þær. Hann vill rústa föður okkar. Hann má skammast sín,“ sagði Samantha Markle við The Daily Mail.
„Bróðir minn bar upp þessar lygar fyrir nokkrum vikum þegar hann hætti að fá pening frá föður okkar. Hann notaði pabba sem peningavél í mörg ár og þegar peningurinn hætti að berast þá skáldaði hann svívirðilegar lygar til að reyna að græða pening frá fjölmiðlum,“ sagði hún jafnframt.
„Það er engin sönnun fyrir því að pabbi minn hafi hlaðið niður þessum myndum. Hann hafði ekki verið með tölvurnar í sinni vörslu í tvö ár. Það gefur töluvert rými fyrir einhvern til að fikta í þeim. Þetta eru órökstuddar ásakanir. Hver sem er gæti hafa átt við þessar tölvur yfir nokkurra ára tímabil. Pabbi var í meðferð og hafði ekki aðgang að þessum tölvum,“ sagði hún.