Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir

Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir

Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir

Leitað var eftir svörum um málið hjá bæjaryfirvöldum sem segja að á meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni tjái þau sig ekki um efnisatriði málsins.

Bæjarstjórn í Garðabæ samþykkti í síðasta mánuði að veita veislusalnum Hlöðunni byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir veislusal til útleigu fyrir allt að 105 manns að lokinni grenndarkynningu. Íbúar hafa mótmælt útgáfu leyfisins, sérstaklega með tilliti til þess að Hlaðan sé löngu byggð. Þá segja þau afar mikið rask af rekstrinum og mikið ónæði. Einn íbúi segir reksturinn forsendubrest þess að búa á svæðinu.

Fulltrúar minnihlutans mótmæltu veitingu leyfisins á fundi bæjarráðs í síðasta mánuði og óskuðu eftir því að afgreiðslunni yrði frestað. Vísað var til þess að ekki væri heimild í aðalskipulagi fyrir veitingastað á svæðinu en í fundargerð bæjarstjórnar kemur fram að lóðin standi innan svæðis sem sé skilgreint sem opið svæði í aðalskipulagi og að samkvæmt því megi á opnum svæðum gera ráð fyrir veitingaaðstöðu.

Í fundargerð bæjarstjórnar um reksturinn kemur jafnframt fram að samkvæmt byggingarleyfi sé gert ráð fyrir veitingarými í flokki II sem geri ráð fyrir umfangslitlum áfengisveitingastað þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og kallar almennt ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.

Hægt er að leigja salinn fyrir veislur. Vísir/Anton Brink

Eiga að lækka í hljóðkerfi

Í fundargerð kemur jafnframt fram að skipulagsnefnd hafi í sinni umfjöllun bent á að vera eigi alfarið innanhúss eftir klukkan 23 um helgar og 22 á virkum dögum. Á sama tíma eigi að lækka í hljóðkerfi innanhúss og nota það ekki utandyra.

Í fundargerð kemur einnig fram að ekkert deiliskipulag sé í gildi á Norðurnesi og mælist nefndin til þess að fullt tillit sé tekið til Breiðabólstaðatjarnar sem njóti hverfisverndar í aðalskipulagi.

„Ekki hafa verið mótaðar sérstakar reglur um umgengni í og við tjörnina og beinir nefndin því til umhverfisnefndar að skoða hvort ástæða sé til að móta tillögur þar um,“ segir í fundargerðinni.

Í bókun sinni sagði minnihlutinn svæðið skilgreint sem opið svæði til útivistar og að fyrirhuguð starfsemi rúmist ekki innan þeirrar landnotkunar sem skilgreind sé í aðalskipulagi. Þá segja þau eiganda Hlöðunnar, Erlend Kristjánsson, þegar hafa hafið framkvæmdir í leyfisleysi og haldið úti rekstri án tilskilinna leyfa í nokkurn tíma. Þá benda þau á skiptar skoðanir íbúa á rekstri á svæðinu og að íbúar í næsta nágrenni hafi verulegar áhyggjur af hávaða sem geti myndast við veitingarekstur í húsnæðinu.

Veislusalurinn er í jaðri hverfisins en íbúar hinum megin tjarnarinnar segjast heyra mikið í veislunum sem þar eru haldnar. Vísir/Anton Brink

Mikilvægi fyrirsjáanleika í stjórnsýslu

Þá benda þau á að í málinu þurfi einnig að taka tillit til umhverfissjónarmiða en við lóðina sé Breiðabólstaðatjörn sem njóti hverfisverndar.

„Það er að mati minnihlutans sérstaklega mikilvægt í viðkvæmum aðstæðum sem þessum að byggingarleyfi verði ekki notað sem fyrsta skref í ákvörðun um breytta landnotkun,“ segir í bókun þeirra.

Þá er að lokum í bókun þeirra minnt á mikilvægi þess að standa vörð um fyrirsjáanleika og jafnræði í stjórnsýslu sveitarfélagsins.

„Gildandi aðalskipulag á að vera sameiginlegur og fyrirsjáanlegur grundvöllur ákvarðana um landnotkun. Ef verulegar breytingar eru heimilaðar án þess að skýr skipulagsstoð liggi fyrir getur það skapað óvissu um hvernig sambærileg mál verði meðhöndluð síðar og verið tilefni kærumála. Minnihlutinn telur að veiting byggingarleyfis sem gengur gegn gildandi aðalskipulagi setji afar óheppilegt fordæmi og áréttar mikilvægi þess að íbúar í Garðabæ geti gengið að því vísu að aðalskipulag standi,“ segir í bókuninni að lokum.

Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar

Eins og fram kom að ofan fór fram grenndarkynning vegna málsins í sumar. Umsagnir hafa ekki verið birtar opinberlega en í þremur af þeim má sjá nokkuð harða andstöðu við reksturinn og bygginguna. Eins og fram kom að ofan hefur kynningin verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Húseigendur á Blikastíg segja í sinni umsögn það „nokkuð sérkennilegt“ að í grenndarkynningu hafi verið óskað eftir leyfi til að reka veisluhald í húsnæði sem gera ætti upp því húsið sé þegar byggt.

„Þetta vinnulag er dálítið eins og verið sé að gera hlutina aftur á bak,“ segir í umsögn þeirra.

Sérstakt að kynna löngu byggt hús

Þar er einnig bent á að húsið sé töluvert stærra en þau sem fyrir voru og að byggt hafi verið utan um gömlu húsin, frekar en að um viðbyggingu sé að ræða.

„Nýja húsið skyggir á útsýni frá Blikastíg en þó gerir undirrituð í sjálfu sér ekki athugasemdir við það þótt nokkuð sérstakt sé að kynna löngu byggt hús með þessum hætti.“

Þau segja talsvert ónæði af veislusalnum sem er rekinn í húsinu.

„Talsvert ónæði hefur verið af þessum rekstri í nærsamfélaginu, hávær tónlist og veisluglaumur oft fram á nætur og jafnvel bæði flugeldar og varðeldar. Flugeldarnir hafa verið sprengdir utan leyfilegs tíma og ekki er vitað hvort sótt hafi verið um leyfi fyrir varðeldinum,“ segja þau og að reglulega sé ölvað fólk ráfandi um svæðið. Þó svo að rekstraraðilar geti tæplega tekið ábyrgð á því hafi það valdið íbúum ónæði.

„Blikastígurinn er friðsæl gata þar sem fólk lætur venjulega vita með fyrirvara ef til stendur að halda upp á eitthvað og ekki fer vel á því að til verði partýstaður í næsta nágrenni. Undirrituð eru því alfarið á móti því að veitt verði leyfi til veisluhalda í Hlöðunni, þótt slík þjónusta hafi þegar farið þar fram um hríð,“ segir í umsögn þeirra.

Íbúar segja forsendubrest á byggð á svæðinu með tilkomu veislusalarins. Vísir/Anton Brink

Aligæsir fái að ráfa um svæðið

Þá er einnig í umsögn þeirra gerð athugasemd við aligæsir sem hafi fengið að ráfa um svæðið og gert íbúum lífið leitt.

„Hér er ekki verið að amast við grágæsum sem eru náttúrulegir íbúar svæðisins, heldur stórum aligæsum sem gera sig heimakomnar um allt svæðið með tilheyrandi óþrifum og jafnvel yfirgangi gagnvart fólki sem reynir að stugga við þeim af lóðum sínum. Staðarhaldari hefur sýnt íbúum svæðisins fullkomið skeytingarleysi hvað þetta varðar, eins og raunin hefur verið bæði með húsbyggingunni og rekstri veislusalarins,“ segir í umsögninni.

Þá segir að lokum að „allur þessi gerningur“, það er kynning á húsum og starfsemi sem hefur farið fram um langa hríð, veki með þeim grunsemdir um að það sé verið að fullnægja skilyrðum um slíkar kynningar og byggingarleyfi til málamynda.

„Við teljum ekki raunhæft að fara fram á að Hlaðan verði rifin en hins vegar mótmælum við því að áfram verði rekinn þar veislusalur með því ónæði sem honum fylgir og ekki síður þessum vinnubrögðum af hálfu sveitarfélagsins.“

Bærinn hafi ekki fylgt lögbundnu ferli

Íbúar við Breiðabólstjörn, hinum megin tjarnarinnar, gera einnig alvarlegar athugasemdir við umsóknina og telja að með grenndarkynningunni í sumar hafi bæjaryfirvöld reynt að koma sér hjá lögbundnu ferli við breytingar á aðalskipulagi.

Meginreglan sé sú að gera skuli deiliskipulag fyrir svæði eða reiti þar sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar samkvæmt 44. grein skipulagslaga, sem vísað er í í grenndarkynningunni, sé þröng undantekning sem eigi aðeins við þegar framkvæmdin sem um ræðir passi inn í fyrirliggjandi skipulag og byggð, sem þau telja Hlöðuna alls ekki gera. Þá benda þau, eins og íbúar við Blikastíg, á að rekstur veislusalarins hafi hafist 2024 og hafi frá þeim tíma valdið íbúum miklu ónæði.

„… með gríðarlegu ónæði fyrir íbúa í nágrenninu og mjög skaðlegum áhrifum á víðfrægt fuglalíf Breiðabólsstaðatjarnar. Á sjö mánaða tímabili árið 2025 voru t.a.m. haldnar í salnum yfir 70 stórar og háværar veislur sem stóðu langt fram á nótt með mikilli truflun á svefnfriði og hófst tímabilið beint ofan í varptíma fugla, sem varð til þess að varpið féll niður og varla sást fugl á tjörninni allt sumarið. Enda virðist það vera fastur hluti af veisluhöldum í Hlöðunni, fyrir utan að skrúfa duglega upp í hljóðkerfinu, að bjóða drukknum gestum að fara á árabátum út á hverfisverndaða tjörnina þegar líður á nóttina,“ segir í umsögn þeirra þar sem einnig má sjá myndbönd af athæfinu.

Þau segja vinnubrögð Garðabæjar í málinu valda furðu og að þau hafi um árabil brugðist eftirlitsskyldum sínum. Þá benda þau einnig á að byggingin standi á skilgreindu almannavársvæði, það sé töluverð flóðahætta og byggingin sé ekki byggð með tilliti til þess. Þá segja þau brunavarnir einnig í ólagi.

„Við krefjumst þess að Garðabær hætti að beita sér fyrir sérhagsmunum, fari að vinna fyrir íbúa alla og að mál þetta fari í lögbundinn farveg skipulagsmála. Við sættum okkur ekki við þessi stórtæku spjöll á umhverfi, friði og ró við bæjardyrnar hjá okkur, að geta aldrei treyst á að fá eðlilegan nætursvefn á eigin heimili, og munum grípa til viðeigandi ráðstafana ætli sveitarfélagið að halda þessari lögleysu til streitu. Að lokum krefjumst við þess að þessi kolólöglega nýbygging verði fjarlægð,“ segir að lokum.

Verulegt rask vegna veisluhalda

Í þriðju umsögninni segir að þó svo að byggingin sé falleg og vel haldið við sé talsvert rask vegna endurtekinna veisluhalda

„Hljóðið berst einstaklega vel inn á Blikastíg og það verður fljótt þreytt að heyra tónlist í botni og drykkjulæti margar helgar í röð. Hlaðan liggur einnig beint við göngustíginn og stígurinn fer í raun í gegnum útisvæðið og ég hef mjög lítinn áhuga á að hitta svona oft fólk í glasi þegar ég geng fram hjá, eða að börnin mín hitti drukkið fólk þegar þau fara í kvöldgönguna með hundinn.“

Þá segja íbúar það töluverðan forsendubrest að flytja í svo rólegt hverfi til að losna við slíkt ónæði en vera svo fast í veislu nær allar helgar.

„Fólk flytur hingað til að vera í burtu frá akkúrat þessu. Umferðin eykst sömuleiðis og verandi langt frá leigubílastöð er hætta á að fólk láti slag standa og keyri undir áhrifum til að spara pening. Að þessu sögðu þá finnst mér hugmyndin ekkert fráleit, en það þarf að gera ráð fyrir veisluhöldum af þeirri tegund sem henta í svona rólegu hverfi og það þarf að hafa samráð og samtal við íbúa til að finna lausnir – og koma þeim lausnum í framkvæmd áður en þetta verður leyft,“ segir í umsögninni.

Landvernd skilaði einnig umsögn vegna málsins þar sem samtökin gerðu athugasemd við starfsemina og að hún færi gegn verndargildi Breiðabólsstaðatjarnar, lífríki tjarnarinnar og skerði auk þess upplifun íbúa og gesta í útivist á nærsvæði.

„Auk þess gerir Landvernd athugasemdir við stjórnsýslulega meðferð málsins af hálfu Garðabæjar,“ segir í umsögninni.

Einar Þór Einarsson, fulltrúi Framsóknar í skipulagsnefnd Garðabæjar, skrifaði um málið á vef Garðapóstsins þar sem hann benti á að byggingarleyfið hefði á innan við tveimur vikum farið í gegnum þrjú stjórnstig án þess að því væri svarað hvort skipulagið heimili starfsemina sem fer fram í Hlöðunni. Hann segir Framsókn ekki á móti veitingarekstri á svæðinu en hann þurfi að standa á traustum grunni og vera samkvæmt gildandi skipulagi.

„Málið snýst í raun um eitt atriði og það má útskýra án lagamáls. Þegar byggja á hús eða breyta notkun þess þarf venjulega deiliskipulag, nákvæma áætlun fyrir svæðið. Til er flýtileið: ef framkvæmdin fellur augljóslega að því sem aðalskipulag bæjarins segir um svæðið má sleppa deiliskipulaginu og kynna málið einfaldlega fyrir nágrönnum. Þetta er undantekning frá þeirri meginreglu skipulagslaga að gera skuli deiliskipulag fyrir svæði þar sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar,“ segir Einar í grein sinni.

Svæðið sem Hlaðan stendur á er skilgreint sem opið svæði.Vísir/Anton Brink

Lóðin þar sem Hlaðan standi sé skilgreind í aðalskipulagi sem opið svæði og meirihluti í bæjarstjórn hafi talið flýtileiðina færa og vísað til þess að gera mætti ráð fyrir veitingaaðstöðu á opnum svæðum.

„Við fórum yfir kaflann. Þar stendur að opin svæði séu fyrir útivist „auk þjónustu sem veitt er á forsendum útivistar“. Orðið veitingaaðstaða kemur ekki fyrir sem almenn heimild, heldur aðeins í umfjöllun um tvo tiltekna flokka bæjargarða. Og þeir garðar eru taldir upp með nafni: svæðin við Hraunsholtslæk og Arnarneslæk, strandsvæðin og svæði meðfram Reykjanesbraut. Norðurnes er ekki þar,“ segir Einar í grein sinni.

Ekkert standi um veitingarekstur í aðalskipulagi

Hann bendir að lokum á að aðalskipulag sé mjög nákvæmt og ekkert standi um veitingarekstur í aðalskipulaginu á þessu svæði.

„Í skipulagsnefnd lögðum við til að málinu yrði frestað þar til fyrir lægi álit bæjarlögmanns, hljóðmæling óháðs aðila og mat á áhrifum á fuglalífið við tjörnina. Sú tillaga var felld með fjórum atkvæðum gegn einu. Málið fór svo í gegnum bæjarráð og bæjarstjórn, þar sem Framsókn, Garðabæjarlistinn og Samfylkingin stóðu saman að bókun um sömu spurningu,“ segir hann og þó svo að skilyrði hafi verið gerð strangari hvað varðar hávaða og útiveru við reksturinn í meðferð stjórnsýslunnar sitji það eftir að málið snúist um meira en eitt hús.

„Aðalskipulag er loforð bæjarins til íbúa um hvað megi og hvað megi ekki á hverjum stað. Sé vikið frá því án skýrra raka veit enginn lengur hvað gildir í næsta máli, hvorki nágrannar né þeir sem vilja byggja upp. Hentistefna á ekki við,“ segir hann að lokum.

#andstaða #hörð #rekstur #við #íbúa


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262951692d/hord-andstada-ibua-vid-rekstur-veislusalar

📰 Aðrar fréttir

Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
📅 24.10.2026 👁️ 0
Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
Í dýrtíð eins og nú er er ekki sjálfsagt að geta lagt fyrir í hverjum mánuði. Annað hvort inn á sparireikning eða borgað inn á lán. Í umræðum á samfél...
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
📅 24.10.2026 👁️ 0
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
Katharine Viviano, 50 ára grunnskólakennari í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir ölvun á almannafæri eftir undarlegt atvik í h...
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
„Innanlandsflugið er lífæð landsbyggðar og tryggir aðgengi að nauðsynlegri þjónustu við fólk. Flugið er öryggismál og jafnréttismál til að jafna aðstö...
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
📅 24.10.2026 👁️ 2
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
Í myndbandi sem birt var af hópnum The Young Turks segir að þingmaðurinn Lindsey Graham hafi keypt vændi af karlmönnum. Graham lést skyndilega í sumar...
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
Mótmælaaldan sem hefur farið vaxandi í Frakklandi á síðustu vikum náði hámarki um síðustu helgi. Fjöldi fólks var handtekinn og voru gerðar miklar ske...
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
Þann 16. apríl síðastliðinn spurði Njáll Trausti Friðbersson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, Eyjólf Ármannsson samgön...
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
📅 24.10.2026 👁️ 3
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
Talsvert er rætt um gervigreind þessa dagana. Margir þeirra sem vinna með höfðinu óttast að þeir verði úreltir og ónothæfir áður en langt um líður. Vi...
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
Frekar undarlegt er það ekki? Vinsælasta skýringin er sú að í upphafi ritvélarinnar festust takkarnir ef pikkað var of hratt. Þannig að uppfinningamað...
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir að stjórnvöld verði að gera grein fyrir úrbótum varðandi neyðarvistun barna. Tvö ár eru síðan drengur í neyðar...
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
Dýrin komust raunar ekki langt. Lögregla náði að handsama hestana þegar þeir stoppuðu til að bíta gras um kílómetra frá verslunarmiðstöðinni og voru þ...
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
Aðfaranótt 14. október tóku úkraínskir hermenn eftir því að takmarkanir virtust hafa verið settar á notkun þeirra á Starshield-kerfinu sem er sérstaku...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Flokks fólksins, er ekki ánægð með fyrirhugaðar breytingar á hinni svokölluðu Loftbrú. Flokksbróðir hennar Eyjólfu...
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
Umsögnin beinist að frumvarpsdrögum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Frumvarpið leggur til að...
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
📅 24.10.2026 👁️ 3
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
An elderly man was resuscitated and taken to hospital after suffering a cardiac arrest at La Garita beach in Arrieta, located in the north of Lanzarot...
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
📅 24.10.2026 👁️ 2
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala Litli spít­al­inn verður opn­aður í hús­næði í eigu stofn­anda Samherja. Nýja einka­rekna sjúkra­húsið ...
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
📅 24.10.2026 👁️ 2
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurland...
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
📅 24.10.2026 👁️ 2
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
A European investment target may have strong financial results and still depend on relationships that do not appear in its accounts. Political connect...
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
Í viðtalinu fer Tolli á kostum, hann fer yfir víðan völl og stiklar á stóru varðandi sinn litríka feril. Hann hætti öllum afskiptum af tónlist eftir a...
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
📅 24.10.2026 👁️ 4
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
Þegar við skrifuðum undir EES-samninginn skuldbundum við okkur til að lögfesta forgang innleiddra laga og regla sem leiddu af honum ef þörf væri á. Hæ...
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona og rithöfundur, leggur til að borgarstjórn Reykjavíkur sameini tvö mál sem henni eru hjartfólgin, það er bók...
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
📅 24.10.2026 👁️ 4
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra hafa skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar leggjast þeir gegn þei...
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af sjúkraflutningum á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í sameiginlegri bókun bæjarstjórnarfulltrúa á fun...
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
Loftbrúarverkefnið var sett á fót fyrir sex árum til þess að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hingað til hefur fól...
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
Greint var frá því í gær að Thomas Markle eldri hefði verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir Meg...
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
Fyrri ríkisstjórn Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur greiddi atkvæði gegn reglugerð ESB árið 2025 og ákvað í kjölfarið að sækja um undanþágu ...
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
📅 24.10.2026 👁️ 4
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
„Ef aðrar hreyfingar eru öflugar þá hafa hinar hreyfingarnar lítið pláss og það heyrist lítið í þeim. Í samtímanum eru bara önnur málefni sem taka mik...
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvað nýtt fangelsi á að heita, hvaða bíómynd á að setja á svið í Borgarleikhúsinu og hvaða land ban...
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meða...
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 3
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
The Met said it passed information to the duchess but did not share it with other law enforcement agencies.
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
Þá verður rætt við þingmann stjórnarminnihlutans sem segir landsbyggðina brjálaða vegna málsins. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hafi lofað samrá...
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi Við­bún­aður víða um Frakk­land í dag. Hvað knýr and­stöð­una áfram? Hvernig hefur hún breyst? Rætt við f...
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
📅 24.10.2026 👁️ 3
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
Fjölmenn mótmæli eru fyrirhuguð í að minnsta kosti átta borgum á Ítalíu, á Spáni, í Portúgal, Albaníu og Austurríki.Yfirvöld í Frakklandi hafa hert ör...
Kim fór til Kína - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Kim fór til Kína - Vísir
Kim fór um borð í lestina í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, sem fór yfir nýju brúna sem liggur yfir Yalu-fljótið og endaði í kínversku borginni Dan...
Íslenska Trump-hatursæðið
📅 24.10.2026 👁️ 3
Íslenska Trump-hatursæðið
Íris Erlingsdóttir skrifar: Sérkennileg árátta hefur gripið um sig í íslenskri þjóðfélagsumræðu – að svara pólitískum skoðunum með skítkasti í stað ra...
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
The prime minister might be dreaming of gold medals in 2040, but he must first navigate the difficult years in between, writes Laura Kuenssberg.
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
📅 24.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
Hrikaleg staða fjármála Seltjarnarnesbæjar er enn á ný komin á dagskrá eftir að sex mánaða uppgjör var birt nýlega þar sem halli á A-hluta bæjarins va...
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
The full feasibility study will look in detail at how hosting the Games in northern England could work.
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
📅 24.10.2026 👁️ 4
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
Residents and holidaymakers can discover a different side of Las Palmas next week, with a bilingual guided walk exploring the city’s British connectio...
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
📅 24.10.2026 👁️ 4
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
Clean-up crews have removed 300 mattresses and 22 tonnes of bulky waste from Costa Calma this month, prompting an appeal for residents and businesses ...
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
📅 24.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
Fifa president Gianni Infantino laughs off questions about whether he considered resigning over the World Cup sell-off debacle.
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu ...
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
📅 24.10.2026 👁️ 4
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
Eftirspurn eftir insúlínsprautum og nálum heldur áfram áfram að aukast. Hægt er að nota sprauturnar til að sprauta peptíðum í líkamann, en borið hefur...
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“ Eftir árás tveggja palest­ínskra manna á ísra­elska her­menn á Vest­ur­bakk­anum boðar Benjamín Net­an...
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
📅 24.10.2026 👁️ 2
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi Mynd: Brynhildur Jensdóttir HMS hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Unu um innköllun á ...
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
📅 24.10.2026 👁️ 4
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
Lögreglan í West Midlands á Englandi handtók 15 ára dreng á heimili hans í Walsall 3. ágúst eftir að leiðtogi Íhaldsmanna í borgarstjórn Wolverhampton...
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
Réttarfar var með öðrum hætti á Íslandi á fyrri öldum. Á 18. og 19. öld var fólk sent til afplánunar í fangelsi í Kaupmannahöfn enda ekkert fangelsi á...
British woman dies after trying to rescue sons swept away at sea in the Bahamas
📅 24.10.2026 👁️ 4
British woman dies after trying to rescue sons swept away at sea in the Bahamas
The children were subsequently rescued from the water, police say.
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
Ný stjórn Ungra Vinstri grænna fundaði í fyrsta skipti í gær en Ari Orrason var kjörinn formaður ungliðahreyfingarinnar um miðjan mánuð. Það vakti ath...
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
📅 24.10.2026 👁️ 4
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
Það eru margar stjörnur og kunnugleg andlit í kvikmyndinni Brink of War sem er nú í sýningum í kvikmyndahúsum landsins. Eitt kunnuglegu andlitanna er ...