Greint var frá því í gær að Thomas Markle eldri hefði verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir Meghan. Sá yngri á að hafa uppgötvað efnið á heimili hins eldri í Filippseyjum og tilkynnt það til lögreglu.
Meghan Markle er gift Harry prins sem er sonur Karls Bretakonungs.
Breska ríkisútvarpið greinir nú frá því að Lögreglan í Lundúnum (Metropolitan Police) hafi fengið bréf um ásakanirnar árið 2019. Hún hafi komið upplýsingunum áleiðis til skrifstofu Harrys prins og Meghan hertogaynju en ekki deilt þeim með öðrum löggæslustofnunum.
„Eftir ítarlega yfirferð á kerfum og gögnum lögreglunnar höfum við staðfest að í janúar 2019 barst okkur bréf sem innihélt ýmsar ásakanir um meint brot utan Bretlands. Það var sent til verndardeildar lögreglunnar til að vekja athygli á áhyggjum varðandi öryggi hertogaynjunnar af Sussex,“ segir í yfirlýsingu lögreglunnar.
„Lögreglan er nú að endurskoða meðferð þessa máls og íhugar hvort nauðsynlegt sé að vísa því til IOPC, óháðrar eftirlitsstofnunar með lögreglu, til að fara yfir vinnubrögð okkar.“
Thomas Markle eldri er til rannsóknar hjá yfirvöldum í Filippseyjum vegna efnisins samkvæmt Sky News. Hann hefur neitað öllum ásökununum.
Í kjölfar frétta gærdagsins sendi Meghan frá sér yfirlýsingu þar sem hún sagðist hafa fengið upplýsingar um ásakanirnar árið 2018 og vegna þessa haldið börnunum sínum tveimur frá föður sínum.