Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir breytingarnar kaldar kveðjur til íbúa á landsbyggðinni.
„Blaut tuska frá ríkisstjórninni“
Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt Loftbrú við kaup á flugi innanlands frá 2020. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiðir um 40%. Frá áramótum breytist fyrirkomulagið.
Í stað 40% afsláttar verða sjö þúsund krónur niðurgreiddar af hverjum fluglegg.
„Ég segi það bara að þetta er blaut tuska frá ríkisstjórninni og með öllu óásættanlegt,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
„Við stólum mjög mikið á Loftbrúna og við höfum frekar verið að vonast til þess að fá aukningu í hana vegna þess að þetta er lykilatriði hjá okkur gagnvart okkar lífsgæðum. Þetta er ekki munaður sem fjölskyldur eru að leyfa sér, heldur ferðir sem við þurfum að hafa til þess að geta sótt nauðsynlega og sértæka þjónustu sem eingöngu er á höfuðborgarsvæðinu.“
Tugprósenta hækkun fyrir Austfirðinga
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sagði í samtali við RÚV í gær að breytingin væri hvati til þess að bóka fyrr og kaupa ódýrari fargjöld. Þeir sem kaupi flugmiða undir 17.500 fái meira en 40% niðurgreiðslu. Ragnar segir staðhæfingu ráðherra bera vott um skilningsleysi.
„Þetta er ekki veruleiki sem við búum við hér fyrir austan. Það er fátítt að fólk fái flug á þessu verði. Mér reiknast til að þetta sé um 25 til 30 prósenta hækkun á því meðaltali sem Loftbrúin hefur verið að greiða niður. Þannig að það er verðmiðinn sem við munum bera af þessu.“
Boðaðar álögur ríkisstjórnar bitni mest á íbúum á Austurlandi.
„Fjölskyldur eru almennt ekki að nýta sér flugið. Það er bara of dýrt fyrir fjölskylduferðir þannig að við erum að nota bílinn líka og þar kemur til að það er 17% hækkun á kílómetragjaldi. Og allt þetta bitnar, sérstaklega á okkur fyrir austan sem búum lengst frá höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ragnar.
Þetta séu kaldar kveðjur til íbúa á landsbyggðinni.
„Þessi tilkynning kemur auðvitað á föstudegi og ég geri ráð fyrir að Eyjólfur vonist til þess að þetta sofni eitthvað yfir helgina. Það er bara enn annað skilningsleysi hjá honum því þetta skiptir okkur gríðarlega miklu máli.“
„Það mun heyrast kröftuglega í okkur á næstu dögum“
Ragnar segir að Landshlutasamtökin og fjöldi sveitarfélaga séu þegar farin að ráða ráðum sínum.
„Fyrsti slagurinn verður auðvitað í því að mótmæla þessu og skora á ríkisstjórnina að endurskoða þetta vegna þess að við ætlum ekki að sætta okkur við þetta. Þannig að það mun heyrast kröftuglega í okkur á næstu dögum.“
Vinna standi yfir við að undirbúa sameiginlegt bréf til fjárlaganefndar.
„Og skora á ríkisstjórnina að endurskoða þetta og fara í annars konar forgangsröðun. Við höfum skilning á því að það þurfi að forgangsraða og loka fjárlagagatinu, það er sameiginlegt verkefni okkar allra. En það er hægt að fara í fjölmargar aðgerðir aðrar en þessa.“