Talsvert er rætt um gervigreind þessa dagana. Margir þeirra sem vinna með höfðinu óttast að þeir verði úreltir og ónothæfir áður en langt um líður. Við lesum fréttir um að gervigreindin hafi leyst stærðfræðiþrautir sem prófessorar í háskólum víða um heim hafa lengi glímt við án árangurs. Hún skrifar skýrslur (meðal annars um sjálfa sig!), fræðigreinar, jafnvel heilu bækurnar, semur tónlist og skrifar skáldsögur margfalt hraðar en nokkur rithöfundur getur látið sig dreyma um.
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd