Þegar við skrifuðum undir EES-samninginn skuldbundum við okkur til að lögfesta forgang innleiddra laga og regla sem leiddu af honum ef þörf væri á. Hæstiréttur hefur bent á að hann geti ekki beitt þennan forgang öðruvísi en að hann verði lögfestur. Okkur ber því skylda til að innleiða bókun 35, sem felur þennan forgang í sér. Þangað til við gerum það njóta einstaklingar og fyrirtæki á Íslandi ekki sömu réttinda og íbúar annarra ríkja EES njóta. Þetta er fyrst og fremst réttindamál fyrir Íslendinga.
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga