Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af sjúkraflutningum á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í sameiginlegri bókun bæjarstjórnarfulltrúa á fundi þeirra í vikunni.
Í sameiginlegri bókun bæjarstjórnarfulltrúa á fundi þeirra í vikunni skora þau á heilbrigðisráðherra og Sjúkratryggingar Íslands að tryggja að greiðslur standi að fullu undir raunkostnaði við sjúkraflutninga á Suðurnesjum. Sjúkraflutningar séu á ábyrgð ríkisins og greiðslur SÍ eigi að standa undir þeim kostnaði.
Samkvæmt kostnaðargreiningu Deloitte hafi halli á rekstri sjúkraflutninga verið 14 milljónir árið 2025. Áætlað sé að hann verði um 48 milljónir árið 2026, þar sem greiðslur lækki á milli ára þrátt fyrir hækkun launa og rekstrarkostnaðar.
Þá hafi kröfur til þjónustunnar einnig aukist án þess að fjármögnun hafi fylgt þeirri þróun. Íbúum á Suðurnesjum hafi fjölgað hratt og áframhaldandi fjölgun kalli á aukna þjónustu og viðbragðsgetu.
Ósanngjarnt að ríkið taki ávinninginn
Það er gömul saga og ný að sögn Vilhjálms Árnasonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ.
„Ríkið einhvern veginn setur kröfur og verkefni á sveitarfélögin og þá þjónustu sem sveitarfélögin veita en er ekki tilbúið að borga það sem það kostar.“
Þá gagnrýnir bæjarstjórnin einnig að sveitarfélagið njóti ekki góðs af því hve hagkvæmur samrekstur sjúkraflutninga og slökkviliðs sé.
„Samreksturinn sparar ríkinu um 120 milljónir en samt erum við að borga hátt í 50 milljónir með rekstrinum,“ segir Vilhjálmur.
Okkur finnst það ósanngjarnt að ríkið taki allan ávinninginn og skilji okkur eftir í skuld.