Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag.
Gestir í fyrsta hluta eru Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, Jökull Sólberg Auðunsson frumkvöðull og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB.
Í öðrum hluta er rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og breytingar á einkunnakerfi. Í þriðja hluta ræða þingmennirnir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki, og Víðir Reynisson, Samfylkingu, um tíðindaleysi á þingi, menntamál og Litla spítalann.