Sagan af Dean Perryman, hreyfingunni hans og vininum Rob rataði til Heimskviða gegnum einhvern samfélagsmiðilinn. Sagan var uppbyggileg og falleg þó að kveikjan sé það ekki. Perryman var meira en til í viðtal um málið.
„Empty Chairs verkefnið, eða Auðir stólar, er í raun mjög einföld hugmynd,“ segir Perryman um verkefnið sem hann kom á laggirnar.
„Einhver hefur frumkvæði að því að skipuleggja hitting á opinberum stað. Sá sem skipuleggur mætir í einhverju appelsínugulu og hugmyndin er að allir séu velkomnir að borðinu. Ef þig vantar einhvern stað til að mæta á, langar að hitta fólk og vera innan um aðra.“
Skipuleggjandinn bókar borð á bar eða kaffihúsi, lætur vita á samfélagsmiðlum og öll eru velkomin. Þú mátt stoppa í fimm mínútur eða allt til lokunar. Þú mátt taka djúptrúnó eða bara sitja og hlusta. Bara það sem þú þarft og vilt.
Í minningu Rob
Auðu stólarnir hafa verið fylltir í rúmt ár, þótt það hafi farið hægt af stað. Þótt framtakið sé fallegt á tilurð hreyfingarinnar sér dapurlega sögu.
Perryman missti Rob, besta vin sinn, úr sjálfsvígi undir lok síðasta árs. Í sorgarferlinu fann Perryman að hann langaði að hitta fólk og tala, hann langaði að búa til rými fyrir þau sem höfðu sömu þörf og hann. Hans upplifun var að sorgin gæti verið einangrandi og fráfall Robs vakti hann einnig til umhugsunar um hversu margir burðast um með erfiðar tilfinningar án þess að ræða það nokkru sinni við aðra.
Perryman var kannski ekki með mjög fastmótaða hugmynd í upphafi. Hann langaði kannski bara að ná til einhverra örfárra. Hann var ekki með það í huga frá upphafi að hefja einhverja allsherjar hreyfingu, enda fór þetta hægt af stað.
Hann setti sér markmið að fara út á meðal fólks á hverjum degi í desember. Setjast á krá og reyna að spjalla við einn eða tvo sem hann hitti þar fyrir tilviljun. Fyrstu dagana sat hann bara einn. Á fjórða degi mætti fyrsti ókunnugi sessunauturinn í einn af auðu stólunum hans. Hann fann þó að þetta gæti hann ekki gert daglega það sem eftir væri ævinnar, að sitja á barnum. Og þá kviknaði önnur hugmynd.
Rob hefði orðið þrítugur í janúar og Perryman datt í hug hvort það gætu ekki verið fleiri í sömu stöðu og hann. Fleiri sem vildu mögulega bjóða til samsætis víðar. Klæðast appelsínugulri peysu og búa til rými fyrir fleiri til að setjast niður og spjalla.
Hann henti út fleiri önglum á samfélagsmiðlum og fjórtán netverjar sögðust áhugasamir um að taka þátt í einhverju svona.
Ósmekklegasti maður heims í appelsínugulu
Stöldrum aðeins við appelsínugula litinn hérna. Perryman er í viðtalinu íklæddur appelsínugulri hettupeysu, reyndar þeirri sömu og hann var í þegar þetta varð einkennislitur hreyfingarinnar. Af hverju appelsínugulur?
Perryman á ekkert gott svar við spurningunni um af hverju appelsínugulur varð fyrir valinu. Í upphafi mætti hann til leiks í venjulegum fötum eins og eðlileg manneskja.
Einn daginn fékk hann svo skilaboð frá manneskju sem sagðist hafa mætt á barinn í þeim tilgangi að fylla eitt af lausu sætunum en ekki komið auga á Perryman. Það fannst honum agalegt og ákvað því að klæðast verulega áberandi fötum svo hann færi örugglega ekki fram hjá neinum sem langaði að setjast niður og spjalla. Og þá varð appelsínugula hettupeysan fyrir valinu.
Hann segist fyrir vikið eiga vandræðalega margar flíkur í appelsínugulum lit. Ef það væri ekki fyrir auðu stólana og tilgang klæðnaðarins yrði hann líklega valinn ósmekklegasti maður heims. Hans orð.
Barmenningin í Bretlandi
Þetta byrjaði sem sagt smátt í sniðum og alls ekki sem einhver skipulögð hreyfing í upphafi árs. Því er gaman að segja frá því að Perryman reyndist sannspár þegar hann taldi mögulegt að það væru fleiri í hans stöðu. Nú erum um 100 viðburðir skipulagðir undir merkjum lausra sæta í viku hverri. Meirihluti þeirra funda fer fram vítt og breitt um Bretlandseyjar en auðu stólarnir hafa þó einnig reynst vænlegir til útflutnings því löndin telja nú yfir 30 þar sem einhver hefur tekið að sér að skipuleggja svona fundi. Þeirra á meðal hafa auð sæti verið fyllt í Suður-Ameríku og Ástralíu sem Perryman segir frábært.
Bretland er land pöbbanna. Barir og krár hafa lengi gegnt hlutverki eins konar félagsmiðstöðva. Þar hittist fólk að loknum vinnudegi, fer yfir málin, pólitíkina, fótboltann og allt hitt. Þetta er gömul hefð, samofin breska samfélaginu að mörgu leyti.
Það var því ekki skrýtið að Perryman hafi valið nærliggjandi krár til að freista þess að fylla tóma stóla. Þangað mæta fastagestir og fólk af flestum stigum samfélagsins. Er þetta hægt annars staðar þar sem þessi rótgróna menning er ekki til staðar?
Perryman segir það lítið mál að velja fleiri og fjölbreyttari staði til að hittast. Krárnar hafi orðið fyrir valinu í hans tilfelli því barir séu þessi viðurkenndi samkomustaður fólks í Bretlandi. En hann hafi líka haft í huga að barir séu líka sá staður þar sem ungir menn halda oft til, eða eiga alla vega leið um. Hann hafi sömuleiðis viljað halda viðburðina á stöðum sem Rob hafði og hefði sótt.
Að því sögðu sé hægt að setjast í auð sæti víða annars staðar en á börum. Hann viti af mörgum fundum undir þeirra merkjum sem eru haldnir á kaffihúsum. Það passi til dæmis vel þegar fólk vill hittast fyrr á daginn, þegar fólk vill ekki vera innan um áfengi eða af einhverjum öðrum ástæðum. Það eina sem er mikilvægt er að það sé enginn aðgangseyrir á fundarstaðinn, allir geti komið án nokkurra skuldbindinga og þurfi ekki að kosta miklu til.
Kærkomið frí frá símanum
Það er svo annað sem mig langaði að spyrja Perryman um varðandi þessa óformlegu fundi og hittinga. Síminn er mikið notað bjargráð þegar fólk, já við öll, erum ein á kaffihúsi, veitingastað, biðstofu og svo framvegis. Freistandi félagi sem hægt er að gleyma sér í og þurfa ekki að vera einn og vandræðalegur, þykjast upptekinn, hafa eitthvað fyrir stafni. Þið þekkið þetta öll. Hefur það verið áskorun í þessu verkefni að fá fólk til að skilja við skjáinn?
Perryman segir samfélagsmiðla og netið allt ýta undir einsemd fólks sem megi líkja við faraldur. Það sé hins vegar ákveðin þversögn í því að samfélagsmiðlar séu ómissandi við að breiða út boðskap auðu stólanna og hjálpi til við alla skipulagningu fundanna. Auðu sætin séu til vegna þess að fólk frétti af þeim á samfélagsmiðlum og taki svo þátt, meðal annars til þess að komast út úr samfélagsmiðlahangsi og til að eiga alvöru samskipti við alvöru fólk.
„Einmannaleikinn er að drepa mig“
Perryman er ekki einn um það að lýsa einmanaleika nútímamannsins sem faraldri. Einmanaleikinn er að drepa mig söng Britney Spears á sínum tíma. En þótt það hafi blessunarlega ekki orðið raunin í hennar tilfelli þá geta einmanaleiki og einangrun verið lífshættuleg. Perryman er ekki einn um það að lýsa einmanaleika nútímamannsins sem faraldri.
Hlutfall breskra ungmenna sem upplifa sig einmana hefur fimmfaldast á undanförnum tólf árum. Institute for Public Policy Research lét framkvæma könnun á einmanaleika og líðan bresku þjóðarinnar nýlega. Þetta er sjálfstæð hugveita sem lætur framkvæma rannsóknir um breskt samfélag.
Samkvæmt niðurstöðunum segjast fimm prósent barna og ungmenna á aldrinum 11 til 24 ára ekki eiga neina nána vini. Hlutfallið var 1% fyrir tólf árum. Alls konar ástæður eru taldar fyrir aukinni einmanaleikatilfinningu fólks. Við erum aðeins búin að fara yfir samfélagsmiðlana. Þá er Covid-faraldurinn enn talinn ástæða aukinnar einangrunar margra og þá hefur atvinnuleysi aukist í Bretlandi.
Þótt Bretland sé hér tekið út fyrir sviga sýna sambærilegar rannsóknir sömu þróun víðar í Evrópu, einnig hér á landi. Hver svo sem ástæðan er. Kannski erum við meðvitaðri en fyrri kynslóðir um hvernig okkur líður og okkur tamara að segja frá því upphátt. Hver veit. En ef fleiri segjast einmana þurfum við að hlusta og breyta einhverju. Um það hljóta flest að vera sammála.
Perryman segir alla þurfa að vera vakandi fyrir einmanaleikanum, sínum eigin og annarra. Nú sé veturinn fram undan, veðrið versni og líðan fólks stundum í takt við það.
Hann segir marga sem hafa sótt lausu sætin hans hafa haft sömu sögu að segja. Þau hafi setið ein heima hjá sér og liðið eins og þau væru þau einu sem þannig væri komið fyrir. Tilfinningin var að allir aðrir væru úti að gera eitthvað skemmtilegt með öðru fólki, þau sætu ein heima. Perryman segir það hafa verið norma liserað að vera einmana, en ekki eins viðurkennt að tala opinskátt um það. Laus sæti gefi fólki tækifæri til að breyta hvoru tveggja.
Fundirnir sem haldnir hafa verið undir merkjum auðra stóla í um 30 löndum eru orðnir á þriðja þúsund. Á heimasíðunnieru útlistaðar reglurnar eða viðmiðin fjögur sem eru höfð að leiðarljósi:
- Borð á bar, kaffihúsi eða öðrum opinberum stað og nokkrir laus stólar fyrir hvern sem er sem vill taka þátt.
- Engin skuldbinding. Þú þarft ekki að skrá þig til leiks og það er engin kvöð að stoppa lengur en þú vilt.
- Þú ræður. Komdu einn, komdu með vini, stoppaðu lengi eða komdu einfaldlega við og segðu hæ.
- Virðing og vinsemd ríkir við borðið. Allir eru velkomnir og enginn þarf að deila neinu sem hann kærir sig ekki um.
Perryman segist luma á mörgum fallegum sögum á þessu bráðum árslanga ferðalagi. Honum er minnisstæður maður sem mætti reglulega og lýsti því yfir að hann langaði bara að komast á barinn. Eftir því sem hittingunum fjölgaði fór hann smám saman að opna sig um skort á tengslum við fjölskylduna sína. Eftir því sem hann ræddi það oftar við sessunauta sína í tómu stólunum öðlaðist hann sjálfstraust til að leita sér aðstoðar og bæta sambandið við fjölskylduna sína.
Perryman tekur einmitt fram á heimasíðu sinni að tómu stólarnir séu ekki meðferð, ráðgjöf eða neitt annað sem fagfólk á alla jafna að sjá um. Þetta sé fyrst og fremst félagsskapur.
Perryman segist reglulega fá sendar fallegar sögur tengdar tómu stólunum. Á fundunum hafi myndast alls konar vinskapur og samvinna og hann hafi fengið sendar myndir af hópum sem hafi farið saman í ferðalög erlendis eftir að hafa kynnst undir merkjum Empty Chairs. Það sé dásamleg viðbót við verkefnið sjálft.
Ókunnugt fólk er dásamlegt
Perryman segist ekki hafa gert sér í hugarlund hversu mikil og góð áhrif þessi litla hugmynd hafi haft á líf hans.
Sorgarferlið eftir fráfall Robs hefði annars verið honum mun erfiðara. Hann sé jú bara þessi hefðbundni gaur frá Essex, þeim sé alla jafna ekki tamt að bera tilfinningar sínar á torg. Þetta hafi hjálpað honum á marga vegu. Hann hafi sömuleiðis eignast fjölda góðra vina undanfarið ár, fólk sem hann hefði annars ekki haft tækifæri til að kynnast.
Margt standi upp úr tæpu ári eftir fráfall Robs. Perryman segir það hafa komið hvað mest á óvart hvað ókunnugt fólk er upp til hópa dásamlegt.
Hugmyndin um að mæla sér mót við ókunnuga geti virkað ógnvekjandi og jafnvel hættuleg. En það hafi aldrei komið upp neitt leiðinlegt, enginn hafi mætt til leiks með leiðindi eða óþægindi. Þetta hafi allt gengið eins og í sögu.
Ísland er enn eftir
Að lokum nefnir Perryman að það eigi enn eftir að bjóða til lausra sæta á Íslandi.
Hann segist vona að einhver heyri þetta viðtal og langi til að láta vaða hér á Íslandi.
Svo ef einhverjir lesendur hafa heillast af sögu Perrymans og vilja halda slíkan viðburð þá er hann með svarið um hvernig eigi að bera sig að. Þið farið einfaldlega inn á heimasíðuna emptychairs.org.uk, ýtið á einn takka og skráið ykkur til leiks.
Hér er hlekkur á heimasíðu Empty Chairs.
Og jú svo þarf að muna að klæðast einhverju appelsínugulu.