„Ef aðrar hreyfingar eru öflugar þá hafa hinar hreyfingarnar lítið pláss og það heyrist lítið í þeim. Í samtímanum eru bara önnur málefni sem taka miklu meira pláss í umræðunni heldur en loftslagshreyfingar,“ segir Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands í Þessu nútímalífi, hlaðvarpsþætti þar sem Arnhildur Hálfdánardóttir dagskrárgerðarmaður rýnir í samtímann, hversdaginn og mannlegt eðli.
Fræðimenn tala oft um félagshreyfingageirann í samfélaginu og Jón Gunnar Bernburg segir að innan þess geira sé takmarkað pláss. Í dag hafi stríð og ýmsar popúlískar hreyfingar tekið yfir þetta pláss, það hafi náðst ákveðin mettun.
„Það er stór ástæða fyrir því að við heyrum ekki mikið um loftslagsmótmæli lengur þó það sé engin ástæða til að halda að loftslagið sé í eitthvað betri málum núna, þvert á móti.“
Önnur baráttumál á góðæristímum
Nú er olíuverð í hæstu hæðum, erfið staða í efnahagsmálum og fólk lítur sér nær. Stundum er talað um góðærishreyfingar, voru loftslagsverkföllin svoleiðis hreyfing? Egill Hermannsson, fyrrum mótmælandi sem rætt er við í þættinum, taldi að svona hreyfingar næðu frekar fótfestu þegar efnahagsástand er gott. Jón Gunnar Bernburg tekur undir það.
„Sögulega, ef við horfum á fyrri hluta tuttugustu aldar þá voru einu hreyfingarnar sem fengu plássa verkalýðshreyfingar og átök um efnahagsleg gæði, þegar fólk fór að hafa það betra á Vesturlöndum á seinni hluta tuttugustu aldar þá veikjast þessar hreyfingar.“
Þá hafi komið fram ýmsar hreyfingar sem sóttu réttindi fyrir minnihlutahópa, til dæmis barátta svartra í Bandaríkjunum og barátta fyrir réttindum hinsegin fólks.
Rætt er nánar við Jón Gunnar Bernburg um eðli mótmæla og ris og hnig loftslagsverkfalla ungs fólks í fimmta þætti af Þessu nútímalífi þar sem loftslagsverkföll ungs fólks eru skoðuð í baksýnisspeglinum.
Krakkarnir sem mótmæltu aðgerðaleysi í loftslagsmálum á Austurvelli vikum, mánuðum, jafnvel árum saman eru orðnir fullorðnir. Hvaða augum líta þau þátttöku sína í Loftslagsverkfallinu nú? Sjá þau eftir einhverju?
Í þættinum greina þau Ida Karolina Harris og Egill Hermannsson frá reynslu sinni en þau tóku bæði virkan þátt í umhverfishreyfingunni og loftslagsverkföllum á vegum Föstudaga fyrir framtíðina.