Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu vikum. Hún náði hámarki sínu um síðustu helgi þegar fjöldi fólks var handtekinn.
Sjá einnig: Mótmælaalda í Evrópu 2026
Nú búa yfirvöld og landmenn sig fyrir aðra helgi mótmæla en víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana í miðborg Parísar og hefur Louvre-safninu verið lokað, að því er kemur fram á heimasíðu safnsins. Sömuleiðis hefur mörgum neðanjarðarlestarstöðvum í borginni verið lokað.
Öll mótmæli hafa verið bönnuð á Bastillutorginu í París og hefur það verið rýmt af lögreglu, að því er kemur fram í vakt BBC um mótmælin.
„Við munum sýna enga linkind gagnvart skemmdarvörgunum, gripdeildarmönnunum og öllum þeim sem beita ofbeldi,“ er haft eftir Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands í umfjöllun BBC.
Emanuel Macron Frakklandsforseti fyrirskipaði í vikunni að aðeins mótmæli skipulögð af viðurkenndum verkalýðsfélögum yrðu leyfð í dag en í öðrum borgum, þar á meðal Lyon, Nice og Montpellier, hafa allar samkomur verið bannaðar.
Í miðju óeirðanna hefur Marie Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, boðað til landsfundar flokksins í Orléans sunnan við París bæði í dag og á morgun. Boðað hefur verið til mótmæla í tengslum við fundinn í Orléans klukkan hálf ellefu í dag segir í frétt DR um málið. Mótmælin séu gegn „kynþáttahatri, fasisma og heimsvaldastefnu.“
Útgöngubann og fresta stórleik
Yfirvöld í Orléans eru sögð á varðbergi og hefur borgarstjórinn Serge Grouard sett útgöngubann á börn yngri en 15 ára. Hefst það klukkan 21 í kvöld og stendur til klukkan sex í fyrramálið.
Þá hefur stórleik Paris Saint-Germain og Lyon í frönsku deildinni í knattspyrnu verið seinkað um sólarhring vegna mótmælanna. Leikurinn átti að fara fram annað kvöld á Parc des Princes-leikvanginum í París en verður þess í stað spilaður á mánudagskvöld.
Herlið sent til Mílanó
Á Ítalíu hefur verið boðað til mótmæla í átta borgum og hefjast þau klukkan 15 í dag. Fimm hundruð hermenn hafa verið sendir til Mílanóborgar vegna mótmælanna. Einnig er búist við mótmælum í Austurríki, Spáni, Portúgal, Albaníu og á Írlandi.
Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í Frakklandi, Ítalíu og Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum.
Hér að neðan má lesa nánar um mótmælaölduna.
Fréttin verður uppfærð.