Réttarfar var með öðrum hætti á Íslandi á fyrri öldum. Á 18. og 19. öld var fólk sent til afplánunar í fangelsi í Kaupmannahöfn enda ekkert fangelsi á Íslandi fyrr en eftir 1760 þegar tukthús var reist við Arnarhól. Erfitt er að tala um fangelsi þegar fjallað er um þrælakisturnar í höfuðborg Íslands – Kaupmannahöfn – á þessum tíma. Fólki sem gerðist brotlegt við lög fjölgaði mjög á Íslandi þegar leið á 18. öldina. Helsta ástæðan voru mikil harðindi sem urðu til þess að fólk lagðist á flakk og stal sér til matar.
Í þáttaröðinni Betrun er fjallað um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð. Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur hefur rannsakað fangaskrár danskra fangelsa á þessum tíma og fundið nöfn 166 Íslendinga í þeim á tímabilinu 1736–1830. Þeirra á meðal er nafn Ólafs Þorsteinssonar sem var dæmdur fyrir að hafa stolið færi. Það ætlaði hann að nota til að veiða sér til matar og síðan ætlaði hann að skila því aftur til eigandans líkt og kom fram í fyrsta þætti Betrunar. Sú fyrirætlun fór á annan veg, þjófnaður hans uppgötvaðist og hann kom í Stokkhúsið 29. október 1757 og á gamlársdegi það ár var hann allur.
Um miðja 18. öld voru dómstigin fjögur á Íslandi þar sem hæstiréttur Danmerkur hafði lokaorðið. Landsyfirréttur tók síðan til starfa um aldamótin 1800. Með konungsbréfi 1734 var mælt svo fyrir að beita skyldi norsku lögunum í þjófnaðar- og manndrápsmálum í stað Jónsbókarákvæða.
Davíð Þór Björgvinsson, doktor í þjóðrétti, hefur rannsakað þetta tímabil réttarsögunnar en hann lagði jafnframt stund á nám í sagnfræði. Hann segir að þyngsta refsing samkvæmt norsku lögunum hafi verið kagstrýking, brennimerking og þrældómur í járnum ævilangt.
Um miðja 18. öld fjölgaði mjög fólki sem var dæmt til refsivistar. Frá því að sakamaður var tekinn til yfirheyrslu og þar til búið var að fullnægja dómi yfir honum þurftu sýslumenn að sjá um viðkomandi, það er að gæta þess að viðkomandi stryki ekki og eins að flytja sakamenn á Alþingi. Ef viðkomandi var dæmdur til þrælkunarvinnu í Kaupmannahöfn þurfti að koma honum á skip. Af þessu hlaust talsverður kostnaður fyrir sýslumenn landsins, ekki síst vegna þess að dönsku kaupmennirnir, sem önnuðust flutning fanganna til Kaupmannahafnar, voru farnir að krefjast greiðslu fyrir flutninginn. Því varð úr að þeir sendu konungi bænaskrá þar sem þeir óskuðu eftir því að fá að stytta þennan tíma með því að taka sakamennina einfaldlega af lífi.
„1758 gerist það vegna þessa ástands að sýslumennirnir taka sig saman og senda bænaskrá til konungs um að gerð verði breyting á lögum og þeim verði heimilt, það er að segja að þeim verði heimilt að taka sakamenn af lífi strax til að spara kostnað við flutning þeirra, til að spara sýslumönnum uppihaldið og svo framvegis. Þeir urðu náttúrulega hvumsa við þarna úti í Kaupmannahöfn af því þá voru farnar að þróast aðrar hugmyndir um meðferð fanga og meðferð sakamanna og hvaða refsingar væru tilhlýðilegar og þá fyrir hvaða brot og svo framvegis. Þarna erum við farin að vísa til hugmynda upplýsingamanna sem mótast um þetta leyti. Þetta er evrópskt fyrirbæri, þetta er hluti af upplýsingunni í Evrópu sem er þá í fullum gangi,“ segir Davíð Þór Björvinsson.
Sýslumennirnir töldu sem sagt að besta lausnin við þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sýslumaður bæði fellt og fullnægt dómnum á einum og sama deginum.
Í Kaupmannahöfn var Henrik Stampe, einn helsti lögspekingur hirðarinnar, fenginn til að skoða þetta mál og gefa stjórninni ráð. Davíð Þór segir að Stampe hafi ekki litist vel á þessar hugmyndir sýslumannanna enda greinilega meðvitaður um hugmyndir upplýsingarinnar sem eru rótin að hugmyndum samtímans um refsingar og sakamálaréttarfar: Að hætta líkamlegum refsingum og að á milli refsingar og brots þurfi að vera ákveðið hlutfall. Þetta byggist á náttúruréttarhugmyndum um að einstaklingurinn hafi rétt sem ríkisvaldið geti ekki tekið af honum.
Í þessu fólst andófið gegn dauðarefsingu. Sá sem ber fram sakir þarf að sanna þær og í stað þess að reiða sig á eið og heitvinning, eins og að ganga á glóandi kolum, víkur það fyrir efnislegri sönnun sem er grundvallaratriði í nútímaréttarfari, segir Davíð Þór.
Niðurstaða Stampe var sú að það væri tímabært að stofna tukthús á Íslandi enda væri óráðlegt að taka fólk af lífi fyrir þjófnað þar sem flestir þeirra væru framdir í neyð vegna ástandsins hér á landi.
Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, hefur rýnt í dómsmál fyrri alda, ekki síst dulsmál og blóðskömm. Hann hefur líka rannsakað morð og segir að á þessu tímabili hafi margir verið teknir af lífi.
Sex aftökur á Þingvöllum 1706
Árið 1706 voru til að mynda sex manneskjur teknar af lífi á Alþingi. Það var árlegur viðburður á Þingvöllum að einhver væri hengdur, höggvinn og konu drekkt. Mörg dulsmál og blóðskammarmál komu einnig upp á 17.-19. öld og refsingarnar voru oft mjög harðar. Aftur á móti sé það ekki rétt, líkt og stundum sé haldið fram, að í þessum málum hafi fólk alltaf verið tekið af lífi enda hefðu aftökurnar orðið miklu fleiri á Íslandi ef svo hefði verið.
Már segir að á þessum harðindatímum um miðja 18. öld hafi verið svo mikið um þjófnaði á Íslandi og sýslumenn hafi ekki nennt að hafa þessa óknyttamenn í húsum sínum yfir veturinn og hafi bara hengt þá. „Þetta er ákveðið réttarfarshneyksli sem mætti kanna betur,“ segir Már í fjórða þætti Betrunar.
Lítið um yfirheyrslur
Að sögn Más hefur það vakið sérstaka athygli hans í þeim morðmálum sem hann hefur rannsakað að undanförnu að sakborningar voru ekki yfirheyrðir að neinu marki. Það var athugað hvað aðrir vissu, sáu eða höfðu heyrt en ekki gengið jafn hart að sakborningum og hann ímyndar sér að sé gert í dag. Ef menn játuðu ekki gat verið erfitt að dæma viðkomandi.
Már nefnir forföður sinn sem dæmi, Magnús Benediktsson bónda að Hólum í Eyjafirði. Magnús, að ætla má, drap stúlku sem hann hafði barnað um 1704. Hann drekkti henni í á en neitaði sök. „Það var maður með honum sem lýsti atvikum en hann bara neitaði,“ segir Már og bætir við að Magnús hafi verið fínn maður og auðugur. „Hann kunni lögin og gat einhvern veginn þvælt þetta mál fyrir hinum dómurunum. Hann fékk eið og rengdi síðan mennina sem voru eiðnir þannig að þetta fór í eintóma þvælu og endaði með því að það var ekki hægt að dæma hann til dauða heldur var hann dæmdur í lífstíðarfangelsi í Kaupmannahöfn. Þar var hann í tíu ár en kom síðan heim.“
Már segir að málið hafi vakið mikla athygli enda var Magnús Benediktsson fínn maður og kunningi Árna Magnússonar. Magnús sneri aftur heim eftir að hafa afplánað á Brimarhólma og sennilega tók eiginkona hans við honum við heimkomuna en þeim varð átta barna auðið.
Már segir að ekkert bendi til annars en að Magnús hafi myrt ungu konuna en honum hafi tekist að halda lífi þrátt fyrir að hafa framið morð.
Í fjórða þætti fjalla Hrannar Hólm, leiðsögumaður í Kaupmannahöfn, og Sigríður Hjördís um Spunahúsið, fangelsið sem íslenskar konur voru sendar í á 18. og 19. öld.
Að sögn Sigríðar var aðbúnaðurinn ömurlegur í þessu fangelsi líkt og í öðrum fangelsum þar sem Íslendingar afplánuðu refsidóma. Þar fengu fangarnir til að mynda ekki fatnað nema á tveggja ára fresti og endaði fatnaðurinn oft sem skiptimynt innan múra fangelsins þar sem íslensku fangarnir bjuggu við þann munað að eiga velgjörðarmenn í borginni.
Í dag er eitt þekktasta bakarí Danmerkur, Lagkagehuset, til húsa þar sem Spunahúsið stóð í Kristjánshöfn. Hrannar þekkir vel sögu hússins og segir frá því þegar Spunahúsið tók til starfa á seinni hluta 17. aldar og var starfrækt til ársins 1928. Konurnar unnu meðal annars við að spinna ull og vefa klæði fyrir danska herinn.
Í fjórða þætti er fjallað um afdrif nokkurra íslenskra kvenna sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar, þar á meðal fyrir dulsmál. Ein þeirra virðist hafa lifað dvölina af en samkvæmt Íslendingabók var hún tekin af lífi. Meira um þetta og fleiri dómsmál í fjórða þætti Betrunar sem hægt er að hlusta á hér að ofan.