Yfir 56 þúsund heimili eru rafmagnslaus í Taívan eftir að fellibylurinn Champi fór þar yfir í gær. Einn lést og yfir fimm hundruð hafa slasast af völdum óveðursins síðan yfirvöld gáfu út veðurviðvaranir á fimmtudag. Yfir 5.000 var gert að yfirgefa heimili sín.
Dregið hefur úr áhrifum af fellibylnum í Taívan en þó er enn hvasst þar og mikil úrkoma. Úrkoma mældist tæplega 24 sentímetrar í Miaoli á vesturhluta Taívan í dag.
Champi er nú á leið norður áleiðis að Kína og Japan. Yfirvöld í Kína hafa gefið út viðvaranir vegna fellibylsins. Nokkrum lestarferðum hefur verið aflýst og tugum þúsunda íbúa hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í Sjanghæ.
Þá hefur tugum flugferða verið aflýst á japönsku eyjunni Okinawa. Japönsk yfirvöld segja að tveir hafi slasast af völdum Champi.