„Suður í hafi er víðáttumikil og djúp lægð á leið austur og verður hún yfir Skotlandi í kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þá bætir í vind við suðausturströnd landsins í nótt og teygir lægðardrag sig yfir landið með rigningu eða snjókomu til fjalla.
Þá er búist við því að í nótt og fyrramálið verði allhvasst eða hvasst austan Öræfa og á Austfjörðum, en dregur síðan úr vindi eftir hádegi.
„Því er ráð að skoða vel veðurspár fyrir þá sem hyggja á ferðalög þar.“
Í öðrum landshlutum verður vindur hægari en úrkomusvæðið færist vestur yfir landið á morgun og mánudag en úrkomulítið verður að mestu leyti sunnan- og vestanlands.
Heldur svalt verður á landinu næstu daga en búist er við því að hiti verði yfirleitt á bilinu 0 til 4 stig og frost inn til landsins. Á mánudag verður fremur hægur vindur um mestallt land og víða bjartviðri, stöku skúrir eða slydduél vestanlands, og um hádegi fer að draga úr ofankomu norðanlands.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Norðlæg átt, 5-13 m/s, en hvassara austan Öræfa og á Austfjörðum fram eftir degi. Víða rigning, með slyddu og snjókomu til fjalla, en úrkomuminna sunnan- og vestanlands framan af degi. Hiti 0 til 6 stig, svalast vestanlands.
Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s og rigning eða slydda á norðanverðu landinu fram eftir degi, en úrkomulítið sunnan heiða. Hiti 0 til 4 stig að deginum.
Á þriðjudag:
Fremur ákveðin norðlæg átt og víða talsverð rigning, einkum norðvestanlands, en úrkomuminna syðst. Hiti 1 til 6 stig.