Þess er minnst í dag að 70 ár eru liðin frá því að hópur flóttamanna frá Ungverjalandi kom til Íslands. Þetta var fyrsti hópur flóttamanna sem Íslendingar tóku á móti.
Þennan dag fyrir sjötíu árum, 23. október 1956, hófst ungverska byltingin - en það leið ekki á löngu þar til Sovétríkin brutu uppreisnina á bak aftur og hrifsuðu aftur til sín völdin með þeim afleiðingum að þúsundir Ungverja voru drepnar, og margir flúðu.
52 Ungverjar flúðu til Íslands. Ungverska menningarfélagið á Íslandi stendur ásamt Rauða krossinum fyrir minningarhátíð í Hlégarði í Mosfellsbæ í dag og kvöld.
Mikael Fransson var einn þeirra sem neyddust til að flýja heimaland sitt. Hann bar ungverska nafnið Miklós Tölgyes áður en hann tók íslenska nafnið.
Fer að heiman í miklum flýti
„Hann fer að heiman sjálfsagt í miklum flýti, ég hugsa það. Í svona byltingu, hafi hann gert það og ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum,“ segir Hulda María Mikaelsdóttir Tölgyes, dóttir Mikaels.
Þaðan lá leið Mikaels í flóttamannabúðir í Austurríki, og svo til Íslands. Þetta var í fyrsta sinn sem íslensk stjórnvöld tóku á móti hópi flóttamanna en frumkvæðið kom að miklu leyti frá Rauða krossinum. Yngsti flóttamaðurinn var þriggja ára og sá elsti 54 ára.
„Enginn hugrakkari en hann að hafa komist hingað“
„Það er yndislegt náttúrulega að geta geta boðið fólki í skjól sem er í þessum aðstæðum,“ segir Hulda María. „Ég þakka náttúrulega fyrir það á hverjum degi, mitt líf og og barnanna minna og það er enginn enginn hugrakkari en hann að hafa hafa komist hingað finnst mér,“ segir Hulda um ferðalag föður síns til Íslands.
Sváfu í svefnpoka uppi á sviði í Hlégarði
En eins og gefur að skilja var Ísland, um hávetur, framandi. Hulda segir pabba sinn þó alltaf hafa talað fallega um Ísland og verið þakklátur Íslendingum.
„Fyrir að hafa fengið að koma hingað að búa hér í öryggi. Og það er enginn her á þessu landi,“ segir Hulda. „Og að það væri kalt og svo sváfu þau hérna á uppi á sviði hér í Hlégarði fyrstu nóttina sína í svefnpokum,“ segir Hulda.
Kominn upp í símastaur í janúar
Hulda segir erfiðar minningar tengjast þessum tíma en að faðir hennar hafi aðlagast hratt og vel. „Þessir atburðir, hann ræddi þetta ekki mikið, hann pabbi. Honum fannst hann vera venjulegur maður sem leitar hælis hér,“ segir hún. Hann hafi um leið ákveðið að læra tungumálið og fara að vinna. „Og hann var kominn upp í símastaur að vinna í janúar,“ segir Hulda.
Minningarhátíðin í Hlégarði hófst með sögusýningu þar sem koma hópsins var rifjuð upp og svo tekur við hátíðardagskrá og kvöldverður. Hulda segir dýrmætt að fá tækifæri til þess að hitta aðra afkomendur og rifja upp þennan tíma.
„Pabbi er ekki að flýja neitt lengur“
„Ég myndi leggja til að við hættum, á 70. árinu að kalla þessa einstaklinga flóttamenn. Ég myndi vilja kalla þá Ungverjana - sem þau eru.“
„Af því að orðið flótti felur í sér ótta líka og þau eru ekki flóttafólk lengur. Pabbi er ekki að flýja neitt lengur. Hann er Íslendingur og við erum stolt af þessari menningararfleið, segir Hulda María.