Mikill eldur braust út í Arnarhreiðrinu, sumardvalarstað Adolfs Hitlers í Bæjaralandi í Þýskalandi, um klukkan níu í gærkvöld að staðartíma. Enn er barist við eldinn.
Þýski fjölmiðillinn Bild greinir frá því að húsið hafi verið nær alelda þegar slökkvilið kom á vettvang og sáust logarnir úr margra kílómetra fjarlægð. Slökkvistarf er erfitt og umfangsmikið enda Arnarhreiðrið afskekkt og hátt upp í fjöllum. Talið er að Arnarhreiðrið hafi verið mannlaust þegar eldurinn braust út.
Eldsupptök eru ókunn að svo stöddu en grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða. Lögreglumenn á leið á vettvang mættu mótorhjólamanni sem var handtekinn. Ekki liggur fyrir hvort hann tengist brunanum.
Arnarhreiðrið, sem einnig gengur undir nafninu Kehlsteinhaus, er staðsett á fjallinu Kehlstein í Bæjaralandi ofan við bæinn Berchtesgaden í 1.834 metra hæð yfir sjávarmáli. Húsið var byggt á árunum 1937 til 1938 sem tehús fyrir Adolf Hitler og til að heilla erlenda gesti og diplómata. Hann notaði það þó sjaldan.
Húsið er einn vinsælasti ferðamannastaður Bæjaralands. Þar er veitingastaður og sögusýning sem fjallar um húsið á tímum nasismans.