Mjódd er fjölfarnasta og stærsta strætóskiptistöð landsins og um hana fara meira en fjórar milljónir farþega árlega.
Ítrekað hefur verið ráðist á fólk og það áreitt í og við skiptistöðina.
Forsvarsmenn Strætó hafa lengi óskað eftir endurbótum á húsnæðinu og Reykjavíkurborg, sem á og rekur stöðina, verður nú við því. Fyrsta skrefið er að gera biðsalinn hlýlegri.
„Þannig að fólki líði betur hérna. Að fólk geti beðið inni og liðið vel í salnum,“ segir Markús Vilhjálmsson sviðsstjóri sölu-, markaðs- og þjónustusviðs Strætó.
Þarna á að vera meiri lýsing og fleiri sæti. Þetta á að vera tilbúið í desember.
Að sögn Markúsar mun listaverk prýða einn vegg biðsalarins. Hann segir að núverandi ástand biðsalarins minni helst á spítala. „Þetta fær þig ekki til að líða vel í umhverfinu hérna.“
Utandyra verður biðstöðin algerlega endurgerð. Til dæmis verða kantar gangstétta hækkaðir svo minni munur verði á hæð þeirra og þrepi strætisvagnanna. Þá verður strætóskýlunum skipt út fyrir glerskýli.
Fleiri öryggismyndavélar, tré og plöntur
Plöntur og tré verða gróðursett, gönguleiðir lagðar og upplýsingaskiltum fjölgað. Settar verða upp fleiri öryggismyndavélar bæði úti og inni og lögregla verður áfram með reglulega viðveru. Þá verður leitast við að fækka stöðum þar sem hægt er að leynast eða dvelja.
Spurður hvort þau vandamál sem hafi skapast í Mjódd felist ekki fyrst og fremst í hegðun fólks fremur en hvernig hús eru skipulögð segir Markús svo vera.
„En með því að uppfæra umhverfið hérna verða lögregla og aðrir betur í stakk búin til að hafa yfirsýn yfir svæðið. En þetta er klárlega líka hegðunarvandamál.“