Meirihluti menningarráðs Reykjavíkurborgar leggur til að framkvæmd verði heildstæð greining á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns Reykjavíkur. Rúnar Freyr Gíslason, formaður nefndarinnar, segir það ekki í kortunum að loka bókasöfnum borgarinnar.
„Bókasöfnin gegna ótrúlega mikilvægu hlutverki og við erum núna nýr meirihluti að fara að kanna hvort það hvernig reksturinn gengur, hvort það eigi að skoða hann betur og hvort hægt sé að gera hlutina betur.“
Afgreiðslu tillögunnar var frestað á fundi menningarráðs í gær og hefur hún því ekki verið samþykkt enn. Stefnt er að því að afgreiða tillöguna á næsta fundi menningarráðs.
Í tillögunni segir að kannað verði hvort hægt sé að sameina útibú Borgarbókasafnsins til þess að hagræða í rekstri. Þá væri hægt að skoða aukið samstarf við skólabókasöfn eða samnýtingu húsnæðis og starfsfólks. Rúnar segir ekki þar með sagt að bókasöfnum verði lokað heldur verði starfsemin einfaldlega endurskoðuð.
„Nú hefur verið látið að því liggja að borgin ætli að fara að loka bókasöfnum í hagræðingarskyni. Markmiðið er hins vegar að rýna í reksturinn og kanna hvort hægt sé að draga úr til dæmis yfirbyggingu í þágu betri þjónustu við notendur safnanna.“
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar myndi sjá um úttektina og meðal annars yrðu rekstrarkostnaður, húsnæðiskostnaður, aðsókn og útlán einstakra útibúa borin saman. Þá verði einnig skoðað aukið samstarf við skólabókasöfn og samnýtingu húsnæðis og starfsfólks.